Fimmtungur líklegur til að kjósa Evrópusinnaða hægrimenn Brjánn Jónasson skrifar 22. apríl 2014 06:30 Benedikt Jóhannesson, formaður Sjálfstæðra evrópumanna, vinnur að stofnun flokks Evrópusinnaðra hægrimanna. Fréttablaðið/GVA
Rúmur fimmtungur kjósenda teljur mjög eða frekar líklegt að þeir myndu kjósa nýtt framboð Evrópusinnaðra hægrimanna samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Flokkurinn virðist sækja meira fylgi til kjósenda Samfylkingarinnar og Bjartar framtíðar en Sjálfstæðisflokksins. Alls sögðu 6,7 prósent þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni, sem gerð var 14. og 15. apríl, að það væri mjög líklegt að þeir myndu kjósa nýtt framboð Evrópusinnaðra hægrimanna, kæmi það fram. Um 14 prósent til viðbótar sögðu frekar líklegt að þeir myndu kjósa framboðið. Alls sögðu því 20,7 prósent það mjög eða frekar líklegt að þeir myndu kjósa Svrópusinnuðu hægrimennina. Meirihluti landsmanna, 52,8 prósent, telur mjög ólíklegt að þeir myndu kjósa nýja framboðið, og 11,4 prósent töldu það frekar ólíklegt. Um 15,2 prósent sögðu það hvorki líklegt né ólíklegt.Þegar skoðað er hvað þeir sem segja mjög eða frekar líklegt að þeir myndu styðja nýja framboðið kusu síðast sést að stuðningur við hægrisinnuðu Evrópusinnana er meira meðal þeirra sem kusu Samfylkinguna og Bjarta framtíð en meðal þeirra sem kusu Sjálfstæðisflokkinn, þrátt fyrir að þeir sem bendlaðir hafa verið við nýja framboðið séu, eða hafi verið, Sjálfstæðismenn. Þannig segja 34 prósent þeirra sem kusu Samfylkinguna síðast það mjög eða frekar líklegt að þeir myndu kjósa nýja framboðið, og 28,6 prósent þeirra sem kusu Bjarta framtíð. Um 15,7 prósent þeirra sem kusu Sjálfstæðisflokkinn í síðustu kosningum segja það mjög eða frekar líklegt að þeir myndu styðja Evrópusinnana, og 13 prósent kjósenda Framsóknarflokksins segja það sama. Þá segja 11,1 prósent þeirra sem kusu Vinstri grænna og 11 prósent þeirra sem kusu Pírata það mjög eða frekar líklegt að þau muni kjósa nýtt framboð, komi það fram. Framboðið gæti notið heldur meiri stuðnings meðal karla en kvenna. Um 23,7 prósent karla segja mjög eða frekar líklegt að þeir myndu kjosa flokkinn, samanborið við 17,3 prósent kvennaNiðurstöðum kannana ber samanKönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 er þriðja könnunin sem hefur verið gerð opinber um stöðu mögulegs framboðs Evrópusinnaðra hægrimanna. Niðurstöðurnar eru mjög svipaðar og í könnun sem Capacent gerði fyrir hóp sem kannar möguleikana á stofnun nýs stjórnmálaflokks, sem gerð var 3. til 10. apríl. Þar sögðust 21,5 prósent telja það líklegt eða öruggt að þeir myndu kjósa Evrópusinnaðan flokk hægra megin við miðju. Spurt var með talsvert öðrum hætti í nýlegri könnun MMR. Þar sagði 38,1 prósent þátttakenda að til greina kæmi að kjósa nýtt framboð hægri manna sem nyti stuðnings Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins. Þorsteinn hefur ekki gefið til kynna að hann komi að þeim hópi sem nú kannar möguleikana á stofnun nýs stjórnmálaflokks.Aðferðafræðin Hringt var í 1.332 manns þar til náðist í 801 samkvæmt lagskiptu úrtaki dagana 14. og 15. apríl. Svarhlutfallið var 60,1 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Ef fram kæmi nýtt framboð Evrópusinnaðra hægrimanna, hversu líklegt er að þú myndir kjósa það? Alls tóku 62,4 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Fleiri fréttir Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Sjá meira