Vistvangur í Landnámi Ingólfs Björn Guðbrandur Jónsson og Hjálmar Hjálmarsson skrifar 16. apríl 2014 07:00 Um þessar mundir hafa samtökin Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs (GFF) starfað í 17 ár. Samtökin kusu sér strax í upphafi afmarkað starfsvæði, hér á suðvesturhorninu þar sem drjúgur meirihluti landsmanna býr og þau hafa haldið tryggð við upphafleg markmið um að nýta lífræn úrgangsefni til uppgræðslu. Á þessum tíma hefur GFF unnið með fjölda ólíkra aðila því ein og sér koma samtök af þessu tagi litlu í verk. Sérstaklega má nefna sveitarfélög, grunnskóla og framhaldsskóla, sem að öðrum aðilum ólöstuðum eiga einna greiðustu samleiðina með stefnumálum og starfsháttum GFF. Á þetta löngum tíma hefur GFF safnað í sarpinn töluverðri þekkingu. Það gildir bæði um faglega þekkingu á viðfangsefnum samtakanna sem og landfræðilega þekkingu á starfsvæðinu. GFF eru býsna „lókal“ samtök og vita orðið lengra nefi sínu um hvernig landið liggur í Landnámi Ingólfs, í margvíslegum skilningi að sjálfsögðu. Samtökin starfa þó í raun ekki síður að hinum hnattrænu umhverfismálum og aðgerðum þeim að lútandi á heimaslóð. „Think globally, act locally“ var ákall Ríó-ráðstefnunnar fyrir 22 árum. Á þessum tímapunkti, með 17 ára reynslu í farteskinu, langar GFF til að endurgjalda samfélaginu margháttaðan stuðning með því að færa því heillaráð um samband manns og umhverfis hér á suðvesturhorninu. Það er hugmyndin um vistvang sem sækir m.a. innblástur í landsþekkt kjörorð um „ræktun lands og lýðs“.Stórt verkefni Hvert mannsbarn á Íslandi þekkir eða ætti að þekkja að gróður- og jarðvegseyðing er harmsaga í rúmlega ellefu alda sambúð landsmanna og fósturjarðarinnar. Sú saga er nærtækt og átakanlegt dæmi um hvernig verðmæt náttúrugæði geta glatast án þess að menn hafi haft tök eða rænu á að sporna við. Gróður- og jarðvegseyðing er um leið vandamál á heimsvísu og er einn þáttur þess að nú grefur undan matvælaöryggi mannkyns. Samtökin GFF voru stofnuð til að taka til hendinni á þessu sviði, á afmörkuðu svæði hér heima við. Ekki endilega til að græða Landnám Ingólfs upp í einni svipan, fremur til að finna haldbærar leiðir og hagfelldar aðferðir til að geta unnið á vandamálinu til framtíðar. Í stuttu máli, að þróa betri sambúð okkar íbúanna við landið. Góðfúsum lesendum er óhætt að trúa því að verkefnið er stórt, þótt eingöngu sé horft til 3% af flatarmáli Íslands, sem er Landnám Ingólfs. Hugmyndin um vistvang er svar GFF og aðferð til að endurheimta glötuð landgæði. Samtökin hafa leyft sér að kalla hana „náttúrugæði af mannavöldum“ eða einfaldlega „sjálfbæra þróun í verki“. Að nefna hlutina skiptir máli en mikilvægast er þó að öðlast skilning á ferlinu, hvernig vistvangi er ætlað að virka. Eftirfarandi punktar gefa hugmynd um hvað GFF sér fyrir sér með hugtakið og hvað gerist á vistvangi: Vistvangur er hugtak í anda sjálfbærrar þróunar, upprunnið á Íslandi og tekur mið af því hve uppblástur og gróðureyðing hafa leikið fósturjörðina grátt í gegnum aldirnar. Vistvangur er skilgreint, afmarkað svæði þar sem lífrænn úrgangur af mannlegri starfsemi er notaður til að byggja upp „náttúrulegan höfuðstól“ gróðurs og jarðvegs. Vistvangur er „snortið“ svæði, snortið af mannlegri starfsemi sem skilar viðkomandi landi hreinum, lífrænum afrakstri og eflir frjósemi þess. Á vistvangi fer fram ræktun lands og lýðs. Þar er æskulýður og nemendur af öllum skólastigum sem og hópar innlendra og erlendra sjálfboðaliða við nám og störf við endurheimt landgæða. Vistvangur gerir mannlegt umhverfi vistlegra og styrkir um leið vistkerfi náttúrunnar þegar lífrænum úrgangi er komið í náttúrulega hringrás. Vistvangur getur orðið leiðarstef út fyrir landsteinana, íslenskt dæmi um nærtæk úrræði við staðbundnum jafnt sem hnattrænum umhverfismálum. Vistvangur miðlar þeirri hugmynd að náttúrugæði geti, ef rétt er að farið, orðið til af mannavöldum. Tilvist mannlegs samfélags þurfi ekki endilega að eyða eða spilla náttúrugæðum. Úrræði finnist í vistkreppu okkar tíma. Eins og áður er sagt, hugmyndin er byggð á 17 ára reynslu GFF við að nota lífræn úrgangsefni til uppgræðslu í Landnámi Ingólfs. GFF hefur nýlega sent sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu erindi þar sem hugmyndin um vistvang er kynnt og sett í samhengi við nýleg áform um vinnslu á eldsneyti úr lífrænum úrgangi. Samtökin gera sér vonir um að hugmyndin megi gagnast til að gera Reykjavík, þar með talin öll nágrannasveitarfélögin, að hinni vistvænu höfuðborg norðursins, titil sem Reykjavík þarf að vinna sér inn en á ekki vísan. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Skoðun Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun