Íbúar á aðstoð að sprengja áætlun ársins í Reykjanesbæ Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 14. apríl 2014 09:03 Í Keflavík. Félagsleg aðstoð Reykjanesbæjar við íbúa hefur þegar sprengt þann ramma sem settur var í áætlun. „
Eðli þessara útgjalda er líkt og þjónusta á bráðadeild sjúkrahúsa, við höfum lítið val. Fólk í neyð á rétt á slíkri aðstoð lögum samkvæmt,“ segir Hjördís Árnadóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldu- og félagssviðs Reykjanesbæjar, þar sem nær fjögur prósent íbúa framfleyta sér með fjárhagsaðstoð úr sveitarsjóði.Hjördís Árnadóttir, framkvæmdastjóri Fjölskyldu- og félagssviðs Reykjanesbæjar.Á árinu 2013 nutu alls 557 einstaklingar fjárhagsaðstoðar í 14.500 manna samfélagi Reykjanesbæjar. Það svarar til 3,8 prósenta af íbúunum. Útgjöld bæjarins vegna þessa voru 275 milljónir eða um 104 milljónir umfram áætlun. Hjördís segir þetta einn stærsta óvissuþáttinn í rekstri bæjarfélagsins. Fjölgun þeirra sem fá aðstoð hefur verið mest hjá fólki á aldrinum 18-29 ára. Frá 2007 hefur þeim fjölgað um 250 prósent á fjárhagsaðstoð. Þess utan er fólk lengur á bótum en áður. „Margir í þessum aldurshópi eiga ekki aðra framfærslumöguleika, hafa aldrei unnið sér inn atvinnuleysisbótarétt og eiga ekki auðsótt á vinnumarkaðinn,“ segir Hjördís.Á síðasta ári misstu 146 manns úr Reykjanesbæ bótarétt sinn hjá Vinnumálastofnun og er áætlað að 158 fullnýti hann á þessu ári. Nærri helmingur þeirra 200 milljóna sem áætlaðar voru í fjárhagsaðstoð á þessu ári kláraðist á fyrstu þremur mánuðum ársins. Hjördís segir ekki minna áhyggjuefni hvað verði um þann hóp sem er hvorki talinn með atvinnulausum né bótaþegum bæjarins. Fjölskyldufólk þurfi að treysta á framfærslu frá einum í stað tveggja. Margir séu í miklum vanda og eftirspurn eftir félagslegu leiguhúsnæði hafi aldrei verið meiri. „Fólk gistir hjá ættingjum og vinum svo vikum og mánuðum skiptir,“ segir Hjördís Árnadóttir.
Tengdar fréttir Tæp fjögur prósent íbúa með fjárhagsaðstoð Útgjöld Reykjanesbæjar vegna fjárhagsaðstoðar voru 275 milljónir árið 2013. Einstaklingum á aldrinum 18-29 ára sem þiggja fjárhagsaðstoð hefur fjölgað um 250% á síðustu sex árum. Á annað hundrað manns munu missa bótaréttinn á þessu ári. 14. apríl 2014 09:02 Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Sjá meira
Tæp fjögur prósent íbúa með fjárhagsaðstoð Útgjöld Reykjanesbæjar vegna fjárhagsaðstoðar voru 275 milljónir árið 2013. Einstaklingum á aldrinum 18-29 ára sem þiggja fjárhagsaðstoð hefur fjölgað um 250% á síðustu sex árum. Á annað hundrað manns munu missa bótaréttinn á þessu ári. 14. apríl 2014 09:02