Lífið

Njóttu tilverunnar Í boði náttúrunnar á netinu

Ritstjórn Lífsins skrifar
Dagný Gísladóttir og Guðbjörg Gissurardóttir
Dagný Gísladóttir og Guðbjörg Gissurardóttir
„Draumurinn var alltaf að gera vefsíðuna virkari en ég ákvað að það væri ekki raunhæfur möguleiki í upphafi þegar maður er að komast af stað í tímaritaútgáfu. Síðan þá hefur Dagný Gísladóttir komið til liðs við okkur en hún byrjaði í starfsnámi hjá mér í fyrra. Lokaverkefni hennar í Háskóla Íslands snerist um vefmiðil svo að við fengum tækifæri til að gera síðuna virka og nutum báðar góðs af því,“ segir Guðbjörg Gissurardóttir, ritstjóri Í boði náttúrunnar, þegar talið berst að nýja vefmiðlinum.

Tímaritið Í boði náttúrunnar kemur út þrisvar á ári og telur Guðbjörg netmiðilinn vera frábæra leið til að brúa bilið á milli blaðanna. Þannig geta þær verið virkar á hverjum degi í að koma góðum boðskap áleiðis. En hvað varð til þess að hún fór út í blaðaútgáfu?

„Ég hafði að sjálfsögðu ekki hugmynd um hve mikil vinna þetta var en mér fannst þetta svo rosalega spennandi. Í þetta blað náði ég að setja öll áhugamálin mín á einn stað svo að það hefur verið drifkrafturinn frá upphafi. Það er ekki sjálfgefið að finna sér þannig vinnuvettvang,“ útskýrir Guðbjörg.

Hún hefur gott auga fyrir grafík og ljósmyndum sem skín í gegn á vefsíðunni. Hún er menntuð sem grafískur hönnuður og segist hafa nýtt sér það í öllu ferlinu. Myndirnar eru fallegar og vefurinn aðgengilegur með efni sem tengist íslenskri náttúru, heilsu og hug og fleiru.

„Það er svo mikið sjónrænt áreiti á okkur og því finnst mér svo mikilvægt að fólk geti notið síðunnar og það er nánast sem augað hvílist í leiðinni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.