Rökstyðji að skilmálar virkjunarleyfa séu ekki brotnir Garðar Örn Úlfarsson skrifar 7. mars 2014 08:00 Meira vatnsmagn í Lagarfljóti en gert var ráð fyrir áður en virkjað var við Kárahnúka hefur að viti heimamanna valdið auknum landspjöllum. Mynd/Úr einkasafni. „
Við fáum ekki séð að það hafi verið farið ofan í þær athugasemdir sem við gerðum,“ segir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, um þá ósk að Orkustofnun endurskoði álit sitt á því hvort Kárahnúkavirkjun og Lagarfossvirkjun uppfylli skilmála virkjunarleyfa. Fljótsdalshérað sendi Orkustofnun bréf um málið í apríl og september í fyrra. Þar var rætt um landbrot og önnur neikvæð umhverfisáhrif vegna þess að vatnshæð í Lagarfljóti eftir að Kárahnúkavirkjun var smíðuð varð um 30 prósent meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Bætur vegna landspjalla til landeiganda við fljótið hafi tekið mið af ákveðinni vatnshæð. „Fljótdalshérað telur vafa undirorpið að skilyrðum virkjunarleyfa hafi verið fylgt,“ segir í bréfi sveitarfélagsins til Orkustofnunar. „Í öllu falli hafi forsendur orkufyrirtækjanna og þar af leiðandi stjórnvalda að baki virkjunarleyfunum ekki staðist.“„Það er lágmark að menn fari ofan í og svari þeim athugasemdum sem við gerðum,“ segir Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs.Forsendur ekki „verulega“ brostnar Sagt er tilefni er til þess að Orkustofnun skoði hvort endurskoða eigi virkjunarleyfi virkjananna tveggja og samrekstur Landsvirkjunar og Orkusölunnar á þeim. Orkustofnun segist nú hafa kynnt sér sjónarmið Fljótsdalshéraðs og umsagnir Landsvirkjunar og Orkusölunnar. Ekki sé ástæða „að svo stöddu“ til að endurskoða virkjunarleyfin. „Það er mat Orkustofnunar að ekki sé unnt að halda því fram að skilmálar nefndar virkjunareyfa, eins og þeir liggja fyrir, hafi verið brotnir né að forsendur virkjunarleyfanna séu verulega brostnar,“ segir stofnunin sem kveður þó „vissulega hafa komið í ljós að aukið vatnsmagn og rennsli árinnar virðist brjóta land á bökkum árinnar.Áhrif á flutning óssins ósönnuð Um færslu óss Lagarfljóts um 3,2 kílómetrum norðar en ósinn var oftast á síðustu öld segir Orkustofnun orsök þess hvorki þekkta né sannreynda staðreynd. Búast má við að bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykki í dag nýtt bréf þar sem óskað verður eftir því að Orkustofnunar taki málið upp að nýju. „Það er lágmark að menn fari ofan í og svari þeim athugasemdum sem við gerðum. Það var ekki gert. Þess vegna viljum við að þeir skoði þetta betur,“ ítrekar Björn bæjarstjóri.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira