Hafna því að Orkuveitunni sé hampað Garðar Örn Úlfarsson skrifar 4. mars 2014 07:00 Hverahlíð er þar sem gufan sést í fjarska efst á myndinni en Hellisheiðarvirkjun er nær. Á milli er þjóðvegur 1. Mynd/Orkuveita Reykjavíkur „
Nauðsynlegt er að skipuð verði sjálfstæð umhverfisnefnd innan sveitarfélagsins sem lætur sig náttúru sveitarfélagsins einhverju varða,“ segja fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn Ölfuss þar sem samþykkt hefur verið að senda breytingu á aðalskipulagi Norðurhálsa til umsagnar hjá Skipulagsstofnun. Að því er kom fram á fundi bæjarstjórnar nær aðalskipulagsbreytingin til svæðis frá Hverahlíð sem stækkar upp á Norðurhálsa um 180 hektara. Aflétt á hverfisvernd og vatnsvernd að því svæði sem iðnaðarsvæðið nær til. „Ef rannsóknir leiða í ljós að um nýtanlegt vinnslusvæði sé að ræða, verða borholur á Norðurhálsum tengdar gufuveitu Hverahlíðarvirkjunar með safnæðum að skiljustöðvum virkjunarinnar,“ segir um tillöguna.Er þetta einhver brandari? Fulltrúar minnihlutans vísa til aðalskipulags Ölfus til ársins 2022 um að viðhalda eigi samfelldum, lítt skertum landslagsheildum eins og framast sé kostur og á áðnaðarsvæðum sé fyrst og fremst gert ráð fyrir umfangsmikilli iðnaðarstarfsemi eða starfsemi sem geti haft í för með sér mengun. „Í ljósi þessarar skilgreiningar er með öllu óskiljanlegt að umhverfisþættir í aðalskipulagsbreytingunni séu allir settir í „0 kost.“ Það eru með öðrum orðum engin neikvæð áhrif samfara þessum hugsanlegu framkvæmdum OR á Norðurhálsum,“ benda fulltrúarnir á. „Er þetta einhver brandari?“ spyrja þeir. Þá benda fulltrúar minnihlutans á að nýta orkuna fyrir álver í Helguvík og segja að ekki samrýmast markmiðum aðalskipulags um að orka sem unnin sé innan Ölfuss nýtist fyrir atvinnulíf þar. Samkvæmt orðum forseta bæjarstjórnar sé markmiðið að aðstoða OR í vandræðum fyrirtækisins.Rangur skilningur og undarlegur málflutningur Fulltrúar meirihlutans segja staðreyndavillur og rangan skilning í málflutningi minnihlutamanna. Umhverfismat muni draga fram í hvaða flokk umhverfisþættir falla. Minnkun á vatns- og hverfisvernd verði innan við 1 prósent af heildarstærð verndarsvæðisins. Einnig segir meirihluti bæjarstjórnar að samskiptin við Orkuveituna fari fram samkvæmt eðlilegri stjórnsýslu. Fulltrúar minnihlutans slitu orð forseta bæjarstjórnar úr samhengi „svo þau þjóni undarlegum málflutningi þeirra.“ Orkuveitunni sé ekki hampað umfram aðra. „Hagmsunir íbúa sveitarfélagsins hafa verið hafðir að leiðarljósi í þessu máli sem öðrum“.Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.Kostir vinnslunnar í Hverahlíð fyrir OR "Hagkvæmasta lausnin til skemmri tíma virðist sú að leiða gufu frá jarðhitasvæðinu í Hverahlíð niður í Hellisheiðarvirkjun og tryggja þannig full afköst virkjunarinnar og tekjur til næstu ára. Það gefur okkur það tóm sem við þurfum til þess að vinna að öðrum lausnum og varanlegri bæði hvað gufuöflun og niðurdælingu á vinnsluvatni varðar."Heimild: Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, á vef fyrirtækisins um kosti þess að leiða gufu frá Hverahlíð fimm kílómetra að Hellisheiðarvirkjun.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira