Hrekkir eru vanmetnir 2. mars 2014 12:00 Logi Bergmann er einn helsti hrekkjasérfræðingur landsins. Mynd/Pjetur
Logi Bergmann Eiðsson er einn helsti hrekkjasérfræðingur landsins. Hann stendur í þessum töluðu orðum í hrekkjastíði við samstarfskonu sína Sigríði Elvu Vilhjámsdóttur. „Ég hef mjög sterkar skoðanir á hrekkjum. Það sést sennilega best á því að ég hef skrifað bók um þá og hef verið með fyrirlestra í fyrirtækjum um mikilvægi hrekkja til að bæta móralinn á vinnustað. Hrekkir, innan skynsamlegra marka, eru nefnilega lykilatriði í því,“ segir Logi sem telur þó mikilvægt að hafa ákveðnar siðareglur. „Þú getur til dæmis beðið um að tölvan þín fái að vera í friði og þá er viðkomandi í raun bundinn af því. Og það má ekki særa og meiða og skemma. Það er algjört aðalatriði að hafa þessa hluti á hreinu.“ Inntur eftir sínum uppáhaldshrekk svarar Logi: „Þegar við hjónin fórum inn hjá Illuga Gunnarssyni og Brynhildi Einarsdóttur og snerum stofunni við. Það var töluverð vinna en algjörlega þess virði. Ég get enn þá hlegið að því.“Spurning Sigríðar Elvu (Loga) til Bjarna Benediktssonar á Beinni línu á DV.is.Logi hefur mjög gaman af endurteknum hrekkjum. „Ég hef til dæmis mjög gaman af því að stríða Sigríði Elvu. Hún á það til að gleyma að loka tölvunni. Þetta byrjaði rólega. Vinabeiðnir til frægra og svo fékk hún um það bil 200 Rodriguez-vini. Það fannst mér fyndið, sérstaklega í ljósi þess að hún botnaði ekkert í því þegar tímalínan hennar fylltist af útlendingum sem allir hétu sama nafni.“ Í uppáhaldi hjá Loga er þó þegar Sigríður Elva (með hjálp frá Loga og Svanhildi konu hans) sendi inn spurningu í Beina línu á DV til Bjarna Benediktssonar. „Hvernig finnst þér ég standa mig í sjónvarpinu (Íslandi í dag)?“ „Bjarni svaraði að hún væri alltaf svo einlæg og eðlileg. Eftir það vissi ég að hún myndi hefna sín,“ segir Logi kíminn.Logi kom að Sigríði Elvu í tölvunni sinni að senda tölvupósta út um hvippinn og hvappinn.Mörgum mánuðum síðar fær Logi sms frá Herberti Guðmundssyni og Sölva Tryggvasyni sem spyrja hvenær þeir eigi að mæta í þáttinn hans. „Ég ók í loftköstum í vinnuna og fyrsta sem ég sá var Sigga á kafi í tölvunni minni, búin að setja nokkra statusa og bjóða um fjörutíu manns í Spurningabombuna. Ekki allt fólk sem ég hefði sjálfur valið!“ Logi segir mikla vinnu hafa legið í því að svara öllum og útskýra málið. „En ég var líka stoltur af Siggu fyrir að hafa svarað fyrir sig og gat hlegið að þessu. Kannski ekki alveg strax en mjög fljótlega. Og nú er staðan sú að Sigga er algjörlega á taugum og á það til að snúa við til að tékka á tölvunni sinni. Og hún veit, jafn vel og ég, að þetta er ekki búið.“
Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira