Tvöfaldir tvíburar Lilja Björk Hauksdóttir skrifar 28. febrúar 2014 15:00 Tvíburarnir Davíð og Bjarni stýra Geggjuðum græjum á Stöð 2.
Tvíburabræðurnir Davíð og Bjarni Hedtoft Reynissynir sem stjórna þættinum Geggjaðar græjur á Stöð 2 gáfu mömmu sinni nákvæm líkön af andlitunum á sjálfum sér. „Líkönin voru gerð í skanna í tækniháskólanum í Danmörku. Andlitin á okkur voru skönnuð inn og búin til þrívíð líkön sem voru svo send í prentara. Prentarinn byggir andlitsmyndina upp lag fyrir lag, í þúsundum laga þannig að úr verður nokkurs stytta. Við fórum með stytturnar til mömmu og gáfum henni svo hún gæti horft á okkur í hillunni heima og þyrfti ekki að sakna okkar en við bræðurnir búum í Danmörku. Henni fannst þetta hins vegar eitthvað svo óhugnanlegt að nú eru stytturnar komnar innst í hilluna þannig að þær sjást varla,“ segir Davíð og hlær. Andlitslíkönin sem bræðurnir gáfu mömmu sinni eru komin upp í efstu hillu á bak við kertastjaka af því henni fannst þau vera óhugnanleg.Í Geggjuðum græjum gefa þeir Davíð og Bjarni áhorfendum innsýn í nýjustu græjur og afrek á sviði vísinda og leggja áherslu á mikilvægi þeirra. Þeir skoða allt sem er nýtt í græjuheiminum og umfjöllunarefnið er fjölbreytt og skemmtilegt og upplýsir áhorfandann um nýsköpun og vísindi. „Það er margt spennandi sem fólk á eftir að sjá í þáttunum. Við eigum eftir að skoða til dæmis gleraugu frá Google þar sem fólk er í rauninni með internetið á nefinu. Hægt er að tala við gleraugun og láta þau finna til dæmis ákveðna staði eða svara spurningum. Svo verður fjallað um hátækniklæðnað sem er með innbyggða greind, leikföng framtíðarinnar og margt fleira.“ Geggjaðar græjur eru á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 20.15 á þriðjudögum.
Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira