Ungu og frægu fólki fylgt eftir Lilja Björk Hauksdóttir skrifar 2. mars 2014 17:00 Sunneva Sverrisdóttir hittir mikið af ungu og skemmtilegu fólki í þættinum Prófíll á Popp tv Jóhann K. Jóhannsson
Prófíll er ferskur og skemmtilegur þáttur á Popp tv sem fjallar um ungt fólk sem er að gera flotta hluti. „Í hverjum þætti er einn einstaklingur tekinn fyrir og líf hans endurspeglað frá mismunandi sjónarhornum, talað við vini og ættingja og viðkomandi fylgt eftir í daglegu amstri og störfum,“ segir Sunneva Sverrisdóttir, stjórnandi þáttarins. Sunneva segir þættina vera stílaða inn á ungt fólk en að allir ættu að hafa gaman af þeim þar sem áhugaverðir einstaklingar koma þar fram. „Við tölum við fólk úr mismunandi geirum mannlífsins en viðmælendur eiga það sameiginlegt að vera ungir og að vera að gera það gott á sínu sviði. Í fyrsta þættinum hittum við Loga Pedro Stefánsson úr hljómsveitinni Retro Stefson. Svo munum við hitta einstaklinga úr sjónvarpsheiminum, leikhúsinu, íþróttunum og úr fleiri spennandi geirum.“ Í næsta þætti Prófíls munu áhorfendur geta skyggnst inn í líf sjónvarpsstjörnunnar Björns Braga Arnarssonar. „Við fáum að kíkja á bak við tjöldin í Gettu betur og hjá Mið-Íslandi og hittum skemmtilega vini og kærustu Björns Braga,“ segir Sunneva. Áhorfendur eiga kost á að senda inn spurningar fyrir viðmælendur Prófíls í gegnum samfélagsmiðlana, Facebook og Instagram. „Við látum vita á þessum miðlum hver næsti viðmælandi þáttarins verður, þar geta áhorfendur skilið eftir spurningu og viðmælandinn svarar síðan nokkrum vel völdum í þættinum.“ Sunneva segir aðdragandann að þáttunum hafa verið óvenju stuttan. „Þetta er búið að vera ótrúlegt ferli, það er aðeins um mánuður síðan hugmyndin kom upp og vinnan að handritinu fór af stað, í dag er fyrsti þáttur kominn út og næstu langt komnir. Þetta er búið að vera mikið stress en á sama tíma ofboðslega skemmtilegt.” Þættirnir verða sex talsins og eru á dagskrá á Popp tv á fimmtudagskvöldum klukkan 20 í opinni dagskrá.
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Megas er látinn Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira