Vilja erlenda ferðamenn í innanlandsflug Brjánn Jónasson skrifar 25. febrúar 2014 07:30 Þó Keflavíkurflugvöllur gæti annað innanlandsflugi er líklegt að farþegum myndi fækka um allt að 40 prósent færist flugið frá Reykjavík til Keflavíkur. Fréttablaðið/Valli
Samgöngur Aðeins lítið hlutfall þeirra sem fljúga innanlands eru erlendir ferðamenn. Fjölgun þeirra gæti verið besti möguleiki innanlandsflugsins til að fjölga farþegum. Þetta ein af niðurstöðum nýrrar skýrslu um innanlandsflug um Keflavíkurflugvöll. Í skýrslunni, sem unnin er af Heklunni, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja, fyrir Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi, segir að innanlandsflug megi „muna fífil sinn fegurri“. Þar segir að farþegum hafi fækkað stöðugt síðustu ár. Á árinu 2012 fóru tæplega 406 þúsund farþegar um Reykjavíkurflugvöll, og hafði þeim fjölgað 7,2 prósent frá árinu á undan. Af farþegunum 406 þúsund voru um 47 þúsund erlendir ferðamenn, um 11,6 prósent. „Ég gerði mér ekki grein fyrir því að það væru svona fáir erlendir ferðamenn sem nýta sér innanlandsflugið,“ segir Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja. Hún segir upplýsingar um samsetningu farþega í innanlandsflugi sýna að flugferðir innanlands séu að verða undir í samkeppninni við einkabílinn með batnandi vegakerfi. Helsta sóknarfærið fyrir innanlandsflugið virðist vera að auka fjölda erlendra ferðamanna sem fljúgi innanlands. Að mati skýrsluhöfunda er Keflavíkurflugvöllur vel í stakk búinn til að taka við innanlandsflugi. Innanlandsfluginu yrði að halda aðskildu frá millilandaflugi, og því þyrfti annað hvort að byggja flugstöð fyrir innanlandsflugið, eða koma því fyrir í byggingum sem þegar eru til staðar. Tölur frá Flugfélagi Íslands, sem vitnað er til í skýrslunni, sýna að félagið reiknar með að farþegum myndi fækka um 25 til 40 prósent fari innanlandsflugið frá Reykjavíkurflugvallar til Keflavíkurflugvallar. Berglind telur þessar upplýsingar ekki til þess fallna að slá hugmyndir um að færa innanlandsflugið til Keflavíkur út af borðinu. „Það fer eftir því hvaða mælikvarða við notum við að meta hagkvæmni. Hvort talað sé um hagkvæmnina af því að samþætta flug á einum stað, eða hvort tekið sé tilliti til ferðatíma fólks,“ segir Berglind.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Sjá meira