Umfangsmiklar lögregluaðgerðir í miðbænum Kjartan Atli Kjartansson og Frosti Logason skrifar 4. maí 2014 15:05 Fjölmennt lið lögreglu í miðbænum.
Fjölmennt lið lögreglu var kallað út að horni Barónstígs og Grettisgötu í miðbæ Reykjavíkur um þrjúleytið í dag. Sérsveitarmenn lögreglunnar voru mættir á staðinn auk fjögurra lögreglubíla og fjögurra mótorhjóla. Lögreglumenn vildu ekki ræða við fréttamann Vísis sem fór á staðinn. Samkvæmt heimildum Vísis var lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á svipuðum tíma að leita manns sem sást með eitthvað sem leit út fyrir að vera skotvopn við Listasafn Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum fyrr í dag. Ekki liggur ljóst fyrir hvort sú leit lögreglu tengist aðgerðunum við Grettisgötu. Lögreglumenn fóru inn í að minnsta kosti eitt hús við við aðgerðir sínar en ekki liggur ljóst fyrir hvort einhver hafi verið handtekinn. Lögregla yfirgaf svæðið á fjórða tímanum eftir að hafa verið með fjölmennt lið lögreglu á svæðinu milli Grettisgötu og Njálsgötu.Uppfært klukkan 17.10 Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að ábending hafi borist lögreglu rétt eftir hádegi í dag. „Ábendingin var tekin alvarlega og var viðbúnaður lögreglu í samræmi við það. Ekkert hefur komið fram sem rennir stoðum undir refisverða háttsemi,“ segir í tilkynningunni. Lögreglumenn að störfum um þrjúleytið í dag.Vegfarendur voru með símana á lofti til að taka myndir af því sem fram fór en lögreglan sást meina að minnsta kosti einum vegfaranda að taka upp myndband á síma sinn. Ekki hefur náðst í lögreglu símleiðis við vinnslu fréttarinnar, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Þeir sem hafa upplýsingar um málið eru hvattir til að senda póst á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Sjá meira