Olíubíll valt á Kleifarheiði Gissur Sigurðsson skrifar 7. mars 2014 13:43 Vísir/Egill
Mikið mengunarslys hefði orðið ef olíuflutningabíllinn, sem valt full lestaður á Kleifaheiði í gærkvöldi, hefði ekki oltið nákvæmlega þar sem það gerðist, að sögn slökkviliðsstjórans á Patreksfirði. Vel gekk að dæla dísilolíu yfir á annan olíubíl í nótt og undir hádegi var verið að ná bílnum og vagninum á réttan kjöl. Ökumaðurinn slapp ómeiddur. Strax og vitneskja barst um atvikið hélt slökkviliðið á Patreksfirði á vettvang með allan tiltækan mengunarvarnabúnað, en ekki varð vart við leka, þótt ekki væri útilokað að eitthvað læki út, undir bílnum, en báðir geymarnir voru fullir af dísilolíu. Útlitið var hreint ekki gott þegar Davíð Rúnar Gunnarsson slökkviliðsstjóri og hans menn mættu á vettvang. „Það var mjög mikil hætta á mengunarslysi. Það er það mikil olía í bílnum, um 35 þúsund lítrar bæði í bílnum og eftirvagninum. Það hefði ekki mátt vera neinn stór steinn sem hann hefði lagst ofan á, þá hefðum við fengið verulega slæmt mengunarslys,“ sagði Davíð Rúnnar Gunnarsson, slökkviliðsstjóri á Patreksfirði. Davíð sagði þann stað sem bíllinn valt útaf vera mjög heppilegan til þess. Bæði snjór og slétt gras væri undir bílnum. „Það eru aðrir staðir sem hefðu verið miklu hættulegri og mun verri.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira