Settið í Kastljósi er sett saman af séríslensku hugviti Jakob Bjarnar skrifar 7. mars 2014 10:35
Iðnþing var haldið í gær og hvatti Svana Helen Björnsdóttir, fráfarandi formaður Samtaka iðnaðarins stjórnvöld til að taka ekki valkosti út af borðinu með því að kallað aðildarumsókn að Evrópusambandinu til baka. Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra var á þinginu, hún flutti einnig ræðu en vék að öðru: Hún hvatti Kastljósfólk Ríkissjónvarpsins til að hafa íslensk húsgögn í settinu hjá sér. Þau væru vissulega flott en hún vildi sjá íslenska framleiðslu og hönnun sem birtist landsmönnum á hverju kvöldi. Fréttablaðið greinir frá þessu í dag. Vísir ræddi við þá Egil Eðvarðsson framleiðanda og Úlf Grønvold Karlsson leikmyndahönnuð hjá hönnunardeild sjónvarpsins og þeir bentu á að þeim þætti vissulega vænt um íslensk húsgögn og íslenska hönnun en þeir eru ekki bara með slíkt af því að það er íslenskt. Það verður að henta. „Við erum meðvitaðir um þetta og öllu þessu er haganlega blandað saman af séríslenskri smekkvísi hönnunardeildar Ríkisútvarpsins. Þeir íslensku hönnuðir sem hér eru umgangast erlent fólk þrátt fyrir að vera íslenskir,“ segir Egill sem ásamt Úlfi og Rebekku Austmann Ingimundardóttur komu helst að hönnuninni.Úr búi ömmu leikmyndahönnuðarins Settið í Kastljósinu er þrískipt; standborð, sófi, stólar og sófaborð og svo viðtalsborð og stólar. Þeir Úlfur og Egill segja þetta samtíning. Og við athugun kemur í ljós að þetta er að verulegu leyti íslensk hönnun. „Hér eru frábærir smiðir og hönnunardeildin smíðaði borðin, eða þarna er gamalt tekkborð úr leikmyndageymslu sjónvarpsins sem var pússað upp. Þarna eru gamlir stólar sem eru hannaðir af íslenskum hönnuði fyrir mörgum árum, og ekki bara úr props-safninu heldur úr búi ömmu leikmyndahönnuðarins (Úlfs) sem voru bólstraðir upp á nýtt. Við reynum að vera nýtin. Hér er sparnaður. Púðarnir eru sérhannaðir af Ingibjörgu saumakonu... Þetta er mikið til smíðað á leikmyndaverkstæði sjónvarpsins,“ segir Úlfur.Stólarnir frá þeim Eames-hjónum Og Egill bendir á að bakgrunnurinn, „það sem er mest áberandi og meira áberandi en húsgögnin, það er allt saman myndir sem við höfum tekið sjálfir. Mynduðum allskonar hluta af íslenskum arkítektúr. Allt vaðandi í honum. Harpa þarna í annarri hvorri mynd.“ Og þannig má áfram telja. Viðtalsborðið er sérsmíðað af leikmyndadeildinni. Þeir Úlfur og Egill telja að líkast til sé ráðherra að tala um stólana við viðtalsborðið. Þeir eru frá hinum heimsþekktu Eames-hjónum frá Bandaríkjunum. Úlfur bendir á að þegar svona þættir eru gerðir er oftast ákaflega stuttur tími sem gefst, ákvörðun er tekin hratt í þessum bransa, kvikmyndum og sjónvarpi. Þá þarf að finna húsgögn sem henta. Betri tími gafst með þátt Gísla Marteins og þar er leikmyndin meira og minna íslensk.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira