Skóvinnustofa orðin að kvennavinnustað Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 7. mars 2014 11:51 Jónína Sigurbjörnsdóttir, lærður skósmiður, Birna Jóna Magnúsdóttir, lærð í skóviðgerðum, og Sandra Björk Rúdólfsdóttir sjúkraskósmiður. Vísir/GVA
Á Skóvinnustofu Sigurbjörns Þorgeirssonar starfa fjórir skósmiðir, þrjár konur og einn karl. Jónína Sigurbjörnsdóttir, eigandi skóvinnustofunnar, segir breytta tíma í iðngreininni en hún var fyrsta konan sem útskrifaðist sem skósmiður á Íslandi árið 1980. Jónína er alin upp á skóvinnustofunni en faðir hennar rak fyrirtækið og því leiddi það af sjálfu sér að hún lagði greinina fyrir sig. „Þetta þótti skrítið á sínum tíma, fólk spurði hvort það mætti tala við skósmiðinn þegar ég kom í afgreiðsluna. Það er reyndar einn og einn sem gerir það enn í dag en það er ósköp fátítt.“ Strangt til tekið mætti formlega skilgreina skóvinnustofuna sem kvennavinnustað í dag þar sem 75 prósent starfsmanna eru konur. „Skósmíði er ekki lengur karlafag. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar frá því að ég útskrifaðist og það þykir ekki eins merkilegt að konur starfi í faginu í dag. Fyrr á árum var starfið óþrifalegra og skósmiðir voru oft einir að vinna í dimmum kjöllurum. Það hefur kannski fælt konurnar frá.“ Hún segir skósmíði alls ekki vera karlmannlegt starf. „Starfið krefst ekki krafta. Eitt og eitt skipti tekur það líkamlega á en fyrst og fremst er þetta vélavinna og að beita verkfærum á nákvæman hátt. Svo er starfið ekki eins skítugt og það var, maður fær auðvitað lím á puttana en af hverju ættum við konur ekki að þola það líka?“ segir Jónína glettin. Hún segir að það hafi verið gott að fá kvengenin í stéttina. Smágerðar kvenhendur eigi auðveldara með að komast innst í skóna og vinnan sé mjög fínleg og nákvæm. „Ég finn að margir koma til okkar því það eru konur sem vinna hérna. Kannski finnst konum gott að tala við konur um kvenskó. Allavega er smá „þú skilur mig svo vel“-stemning í afgreiðslunni þegar konur koma með brotna hæla eða önnur vandamál tengd kvenskóm.“Strákarnir koma síður í „stelpufögin“ Kynjaskiptingin í skósmíðanámi hefur verið alveg jöfn síðastliðin ár. Sigríður Ágústsdóttir, skólastjóri Hönnunar- og handverksskóla Tækniskólans, segir konur þó frekar sérhæfa sig eða fara í framhaldsnám. „Konurnar fara síður í þessa hefðbundnu viðgerðarþjónustu en það eru þó alltaf einhverjar. Konurnar fara gjarnan að vinna hjá stoðtækjafyrirtækjum eða sérhæfa sig í skóvandamálum.“ Sigríður segir konum vera að fjölga verulega í iðngreinum sem áður hafa verið hefðbundnar karlagreinar. Fyrr á árum voru það nær eingöngu karlar sem lærðu gull- og silfursmíði en í dag eru konurnar orðnar fleiri.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira