Innlent

Orðið „hroðbjóður“ notað í fyrsta skipti í sögu Alþingis

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Guðlaugur Þór og Katrín notuðu slangur á þinginu í gærkvöldi.
Guðlaugur Þór og Katrín notuðu slangur á þinginu í gærkvöldi. Vísir/GVA
Slanguryrðið „hroðbjóður“ var sagt í fyrsta skiptið í ræðu á þingi í gær, þegar Katrín Júlíusdóttir krafðist afsökunarbeiðni frá Gunnari Braga Sveinssyni vegna orðalags umdeildrar þingsályktunartillögu hans, sem felur meðal annars í sér að draga aðildarumsókn Íslands í ESB tilbaka:

„Hæstvirtur utanríkisráðherra ætti að sjá sóma sinn í því að koma hér í þennan stól og biðja þingheim afsökunar. Bæði þennan, sem að fær þennan hroðbjóð hingað inn á sitt borð og líka fráfarandi þing sem er borinn þessum þungu sökum.“

Mörður Árnason, flokksbróðir Katrínar, íslenskufræðingur og höfundur slangurorðabókar, telur þetta slanguryrði líklega hafa orðið til við samslætti tveggja orða. „Væntanlega er þetta samsett úr orðunum hroðalegt og viðbjóður. Þetta er svolítið Vigdísar Hauksdótturlegt,“ segir hann.



Sultuslakur

Annað slanguryrði var einnig notað í gær, þegar Guðlaugur Þór Þórðarson sagði eftirfarandi í ræðustól Alþingis:

„Ég skil ekki alveg hvað háttvirtur þingmaður Guðmundur Steingrímsson var að segja þegar hvort að menn eigi ekki að slaka á. Ég get ekki orðið var við annað en að það séu hér allir sultuslakir.“

Guðlaugur er ekki fyrstur til þess að nota það slangur. Björn Valur Gíslason, þáverandi þingmaður Vinstri grænna, var fyrri til þegar hann sagði stjórnarandstöðuna árið 2009 hafa verið allt að því sultuslaka.



Mörður segir mörk hátíðlegs orðfæris á þingi og slangurs vera að minnka.Vísir/GVA
Mörkin að minnka

Mörður segir þessa slangurnotkun þingmanna vera til marks um breytt tungutak þingmanna. „Mörk hátíðslegs orðfæris, hversdagslegs málfars og slangurs eru að minnka. Alþingi er mjög merkur staður þegar orðalag er skoðað. Þar koma inn mikið af tæknilegum orðum í skýrslum og umsögnum. Einnig er mikið talað og oft eru ræður ekki skrifaðar. Þó menn temji sér ákveðinn virðuleika er umræðuefnið stundum þannig að slangur er notað,“ útskýrir Mörður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×