Konungur kokteiltónlistarinnar klár og kátur á kantinum Jakob Bjarnar skrifar 2. apríl 2014 13:54 André Bachmann kemur reglulega fram við annan mann og þeir taka um 30 þúsund krónur fyrir það.
Gleðigjafinn og tónlistarmaðurinn André Bachmann, sem stundum er kallaður konungur kokteiltónlistarinnar, telur ekki úr vegi að fleirum gefist kostur á að spila fyrir eldri borgara á dansleikjum þeirra á sunnudagskvöldum. Vísir birti frétt nú í morgun sem vakið hefur mikla athygli en þar greinir frá því að Haukur Ingibergsson leiki vikulega fyrir dansi í dansleikjahaldi sem Félag eldri borgara stendur fyrir, er á föstum samningi hjá FEB og hefur fengið greitt fyrir það 97 þúsund krónur fyrir dansleikinn -- 400 þúsund á mánuði. Þetta hefur hann gert frá árinu 2005. Margir velta því fyrir sér hvort þetta er sanngjörn verðlagning fyrir dansleik, víst er að í sjálfu sér getur þetta ekki talist há upphæð fyrir eitt stykki dansleik en víst er að margur tónlistarmaðurinn horfir löngunaraugum til þess að geta verið með fast „gigg“ vikulega og þurfa ekki svo mikið sem róta hljóðfærum. Einn þeirra er André sem er öllum hnútum kunnugur þegar dansleikjahald eldri borgara er annars vegar. Þetta kom á daginn þegar Vísir hringdi í André til að kanna nánar hvernig þetta allt er í pottinn búið. „Ég veit ekkert um taxtann hans Hauks. En við Ellý heitin Vilhjálms, spiluðum reglulega fyrir eldri borgara í Risinu, sem þá var. Hún var í hljómsveitinni hjá mér auk Árna Scheving, Einari Scheving og Karli Möller. Hljómsveitin Gleðigjafarnir. Við fengum 15 þúsund á mann. Ætli það sé ekki uppreiknað svona 30 þúsund. Alltaf rífandi stuð og troðfullt út úr dyrum,“ segir André kátur. Síðan færðust dansleikirnir í félagsheimili Félags eldri borgara í Stangarhyl. André sem kemur reglulega fram segir misjafnt hversu mikið hann taki fyrir „giggið“. „Ef þetta er afmæli eða eitthvað svoleiðis, eftir hádegi, þá eru þetta kannski 20 til 30 þúsund samtals. Við erum þá tveir. Jájá. Það er kreppa og hefur verið lengi. Þetta er meira og minna búið með þessi böll. Nema hjá eldri borgurum. Mér þætti ágætt að fleirum gæfist kostur á að spreyta sig á því að spila fyrir eldri borgara og þá fyrir minni pening.“
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira