Á sjöunda þúsund vatnstjóna verða á ári Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 13. mars 2014 07:00 Það geta fylgt því mikil óþægindi og rask að verða fyrir vatnstjóni og oft þarf að endurnýja innréttingar, gólfefni og flísar. Vísir/vís
Milljarða eignatjón, óþægindi og jafnvel heilsutjón verður vegna vatnsleka, raka og myglu á íslenskum heimilum ár hvert. Sumt af því bæta tryggingafélögin og er kostnaður þeirra við vatnstjón tæpir tveir milljarðar á síðasta ári. Í um þrjátíu prósent tilfella, eða í 1.500 tilfellum af 5.200, er vatnstjónið ekki bótaskylt. Kostnaður vegna tjóns sem ekki fæst bætt er ekki þekktur en ef reiknað er meðaltjón sem tryggingafélögin bæta einstaklingum, sem er þrjú hundruð þúsund krónur, þá má áætla að einstaklingar þurfi að taka á sig tæplega fimm hundruð milljónir króna á ári vegna vatnstjóna sem ekki eru bótaskyld. Jafnvel þótt tjón séu bótaskyld þurfa einstaklingar að greiða eigin áhættu, eða sjálfsábyrgð, upp á tæpar þrjú hundruð milljónir á ári.Samstarfshópur um varnir gegn vatnstjóni var stofnaður á síðasta ári vegna þess mikla kostnaðar sem fylgir vatnstjóni og fjölda tilvika. Til samanburðar er kostnaður vegna eignatjóns í eldsvoðum 1.239 milljónir árið 2013 eða tæplega helmingi minni en vegna vatnstjóna. Samstarfshópurinn hefur gefið út leiðbeiningar fyrir almenning til að draga úr tjóni vegna vatnsleka. Annars vegar leiðbeiningar til að minnka líkur á vatnstjóni, til dæmis með réttu viðhaldi og endurnýjun lagna með aðstoð fagmanna. Hins vegar með því að leiðbeina um fyrstu viðbrögð við leka; meðal annars loka strax fyrir vatnsinntak, hafa samband við tryggingafélagið og þurrka vel upp eftir vatnstjón svo ekki myndist raki og mygla í húsum.Birna Ásmundsdóttir Olsen lenti í vatnstjóni vegna ofns sem lak í stofunni.Vísir/ValliSvakalegt umstang Birna Ásmundsdóttir Olsen og maðurinn hennar lentu í því óláni að vatn lak úr gömlum ofni inni í stofu. „Nágrannar okkar vöktu okkur snemma á sunnudagsmorgni og sögðu okkur að vatn læki niður loftið í þeirra íbúð,“ segir Birna. „Ef þau hefðu ekki orðið vör við lekann þá hefði þetta orðið miklu verra.“ Birna segir að miklar skemmdir hafi orðið á parketinu og það hafi verið rifið upp og þurrkað. Að auki voru stórir, háværir blásarar í stofunni í fleiri daga til að þurrka gólfið og svo þurfti að setja nýja ofna í stofuna og leggja parketið. „Þetta var svakalegt umstang. Við þurftum að tæma alla skápa og færa dót til og frá. Það er ekki gaman að lenda í þessu en sem betur fer var allt tilbúið tveimur dögum fyrir löngu planaða afmælisveislu í húsinu.“
Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira