Sakaður um að svíkja fé af presti og flóttamanni 17. febrúar 2014 14:29 VÍSIR/STEFÁN
Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Sigurði Kárasyni hófst í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur en honum er gefið að sök að hafa svikið út 117 milljónir króna af 16 manns. Samkvæmt hádegisfréttum RÚV var Sigurður ekki mættur fyrir dóm í morgun. Sigurður var dæmdur í 20 mánaða fangelsi árið 1999 fyrir að svíkja um 30 milljónir af ekkju þekkts athafnamanns en konan var með Alzheimer. Sigurður þurfti ekki að sitja allan dóminn af sér þar sem forseti Íslands náðaði hann. Meðal þeirra sem báru vitni í morgun var kona sem kom hingað til lands sem flóttamaður árið 1990 að því er fram kom í frétt RÚV. Konan kann litla íslensku og kynntist Sigurði þar sem hún vann við afgreiðslu í búð þar sem hann var viðskiptavinur. Hún lét hann fá 500 þúsund krónur þegar hann bauðst til að útvega henni gjaldeyri en hún ætlaði að fara með fjölskyldu sinni til Kanada. Peninginn sá hún ekki aftur. Sóknarprestur í Reykjavík bar einnig vitni í morgun en hann lánaði Sigurði níu og hálfa milljón. Sigurður hafði beðið prestinn um hjálp þar sem hann væri í erfiðleikum með gjaldeyrissamning. Presturinn lánaði honum í nokkrum greiðslum og sagði presturinn að hann hefði verið kominn inn í ferli sem var erfitt að standast sálfræðilega.
Tengdar fréttir Náðaði svikahrappurinn Sigurður Kárason var ekki viðstaddur þegar þingfesting í máli hans fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 11 í morgun. Forsetinn náðaði hann á sínum tíma en Björn Bjarnason hefur bent á að forsetinn hafi minnst með þá ákvörðun að gera. 5. september 2013 11:27 Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Sjá meira
Náðaði svikahrappurinn Sigurður Kárason var ekki viðstaddur þegar þingfesting í máli hans fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 11 í morgun. Forsetinn náðaði hann á sínum tíma en Björn Bjarnason hefur bent á að forsetinn hafi minnst með þá ákvörðun að gera. 5. september 2013 11:27