Þorlákshöfn er Hawaii norðursins Garðar Örn Úlfarsson skrifar 10. mars 2014 08:00 Vanir brimbrettamenn stunda íþróttina allan ársins hring í Skötubót ef færi gefst. Mynd/Surf.is „
Þetta er falinn fjársjóður,“ segir Bjarki Þorlákssson hjá surf.is um fjöruna í Skötubót í Þorlákshöfn þar sem vel er tekið í þá hugmynd að komið verði upp aðstöðu fyrir brimbrettafólk. Bjarki segir brimbrettaiðkun sífellt vaxa fiskur um hrygg á Íslandi. Skötubót sé meðal þeirra staða sem ákjósanlegastir séu fyrir íþróttina. „Við erum að falast eftir að fá að koma upp skýli, kannski skúr eins og notuð eru í byggingariðnaði, til að geta klæðst göllunum í skjóli og farið í sturtu. Bjarki segir að nú séu á bilinu fimmtíu til sextíu manns sem stundi brimbrettin að staðaldri. Námskeið fyrir byrjendur séu haldin í Skötubót og í Sandvík á Reykjanesi. Þeir sem reynslumeiri séu geti stundað íþróttina nánast um allt land. Vaxandi straumur útlendinga kemur að sögn Bjarka til að standa á brimbrettum við strendur landsins. Þeir séu mjög hrifnir af Skötubótinni.Farið yfir stöðuna í fjörunni í Skötubót.Mynd/Surf.isHawaii norðursins „Þessi svarti sandur er alger perla í augum útlendinga og þeir eiga ekki orð. Útlendingar sem koma hingað eru að taka myndir sem þeir fá birtar í flottum surf-tímaritum erlendis, á netinu og samfélagsmiðlum. Þannig að þetta er fljótt að spyrjast út og gæti orðið tiltölulega stórt innan fárra ára,“ segir hann aðspurður um hugsanlegan uppgang brimbrettaíþróttarinnar. Þá bendir Bjarki á að Skötubót og svæðið þar í kring höfði ekki aðeins til brimbrettafólks. Kajakmenn stundi þaðan siglingar og í landi sé golfskáli þar sem hægt sé að fá veitingar. Sem fyrr segir tekur bæjarstjórn Ölfuss vel í hugmyndir brimbrettkappa. Þegar er gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2014 til 2017 að hefja undirbúning að uppsetningu á aðstöðu fyrir brimbrettafólk í Skötubótinni. Bjarki er ánægður með þróunina. Varðandi frekar uppbyggingu kveður hann vissulega ýmsa möguleika í ferðaþjónustu á svæðinu. „Þó ég sé ekki að halda því fram að þetta sé Hawaii er þetta kannski Hawaii norðursins.“
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira