Úgandamaður hefur orðið fyrir aðkasti í kjölfar viðtals Guðsteinn Bjarnason skrifar 28. febrúar 2014 10:45 Karim Birimumaso vill berjast fyrir réttindum samkynhneigðra í Úganda. Vísir/Valli „
Það er alls ekki rétt að ég sé á móti samkynhneigðum og vilji refsa þeim,“ segir Úgandamaðurinn Karim Birimumaso, sem var í viðtali við Fréttablaðið á miðvikudaginn. Viðtalið vakti hörð viðbrögð, enda mátti skilja það svo að Karim aðhyllist að flestu leyti þá fordóma sem landlægir eru í heimalandi hans gagnvart samkynhneigðum. Hann hefur orðið fyrir margvíslegu aðkasti hér á landi eftir að viðtalið birtist og vill endilega koma því á framfæri að misskilnings hafi gætt í viðtalinu. Nú er jafnvel svo komið að honum hefur verið vikið úr aukastarfi, sem hann vinnur á kvöldin. Þegar Karim ræddi við blaðamann á þriðjudaginn var honum mikið niðri fyrir og vildi ólmur útskýra af hverju Úgandamenn hafi andúð á samkynhneigðum. Hann vildi koma því á framfæri við Íslendinga að fordómarnir í Úganda stafi bæði af almennri fáfræði um samkynhneigð en líka vegna þess að algengt sé að reynt sé með gylliboðum hvers kyns að fá ungt fólk til þess að stunda vændi, og það sé iðulega gert undir merkjum samkynhneigðar. „Vandinn er sá að Úgandamenn rugla þessu tvennu saman, mansali og samkynhneigð. Það er nauðsynlegt að stöðva mansalið.“ Hann segir það misskilning blaðamanns, sem fram kom í viðtalinu, að hann sjálfur rugli þessu tvennu saman: „Mansal hefur auðvitað ekkert með samkynhneigð að gera.“ Hann vilji hins vegar fara til Úganda og uppfræða heimamenn þar um samkynhneigð: „Það þarf að segja þeim að til sé fólk sem er fætt samkynhneigt. Það sem nú þarf að gera er að samtök samkynhneigðra taki sig saman og segi Úgandamönnum þetta.“ Karim, sem er hið mesta ljúfmenni í viðkynningu, segist hafa verið lengi að átta sig á þessu. „Það hefur tekið mig þessi fjögur ár frá því ég kom til Íslands.“ Nú er hann hins vegar orðinn mikill áhugamaður um að tryggja mannréttindi samkynhneigðra í Úganda. Hann vilji til dæmis alls ekki sjá vini sína eða ættingja fara í fangelsi fyrir að vera samkynhneigðir. Uppfærsla kl. 14:32 Yfirmaður Karims hafði samband við Vísi og vildi koma því á framfæri að einungis hafi verið ákveðið að gefa honum frí yfir helgina til að hlífa honum við hugsanlegu aðkasti. Honum hafi ekki verið vikið úr starfi.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira