Systur réðust á menn í strætó sem áreittu þær kynferðislega Atli Ísleifsson skrifar 1. desember 2014 14:45 Atvikið átti sér stað á föstudaginn í Haryana í norðurhluta Indlands. Annar farþegi tók atvikið upp á síma.
Myndband af tveimur systrum sem slá til þriggja manna sem höfðu áreitt þær kynferðislega í strætisvagni á Indlandi hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum í dag. Atvikið átti sér stað á föstudaginn í Haryana í norðurhluta Indlands. Farþegi tók atvikið upp á síma. Systurnar Aarti og Pooja, 22 og nítján ára, voru á leið heim þegar árásin átti sér stað síðastliðinn föstudag. Pooja segir í samtali við BBC Hindi að þremenningarnir hafi „ógnað og misnotað“ þær systur. „Ég sagði þeim að ef þeir myndu aftur snerta mig yrðu þeir barðir. Þeir hringdu þá í vin sinn og sögðu honum að koma þar sem „þeir þyrftu að berja einhverjar stelpur““. Hún segir að systurnar hafi ákveðið að ráðast á mennina þegar engin hinna farþeganna kom þeim til aðstoðar. „Enginn í strætisvagninum kom til aðstoðar. Svo við tókum fram beltin okkar í sjálfsvörn [og slógum til mannanna]. Ef aðrir farþegar hefðu komið til aðstoðar hefðum við ekki þurft að svara fyrir okkur með þessum hætti.“ Systurnar segja að mennirnir hafi ýtt þeim út úr vagninum þegar hann var stöðvaður og ráðist þar á þær aftur. Þá hafi þær kastað múrsteini í átt að mönnunum sem hafi þá flúið af vettvangi. Lögregla hefur nú handtekið mennina og ákært þá fyrir árásina. Ofbeldi gegn indverskum konum hefur verið mikið í umræðunni eftir að hópur karlmanna nauðgaði og myrti unga konu í höfuðborginni Delhi í desember 2012.
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fleiri fréttir Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Sjá meira