Sýndargirðing gæti haldið síld frá Kolgrafafirði Garðar Örn Úlfarsson skrifar 5. maí 2014 07:00 Tillaga Verkís er að setja upp vegg af hljóðbylgjum eða ljósi nokkru neðan við brúna yfir Kolgrafafjörð. Fréttablaðið/Vilhelm „
Það má ekki láta tímann líða og hlaupa svo í þetta mánuði áður en síldin gengur inn,“ segir Gísli Karel Halldórsson, byggingarverkfræðingur hjá Verkís, sem bent hefur á að nota megi hljóðbylgjur eða ljós til að fæla síld frá Kolgrafafirði. Áætlað er að síld að verðmæti sjö milljarðar króna hafi drepist í Kolgrafafirði í desember 2012 og í febrúar 2013. Verkís gerði skýrslu um málefnið fyrir umhverfisráðuneytið í fyrra en var synjað um styrk frá Vegagerðinni til að skoða málið frekar. Sú lausn sem fyrirtækið leggur til að verði reynd er sýndargirðing nokkru neðan við brúna sem smíðuð var yfir fjörðinn. Hægt væri að kveikja á girðingunni eftir þörfum í gegn um farsíma.Eru ekki ný vísindi „Fiskigöngum er stundum stjórnað með rafmagni en niðurstaðan var að það sé ekki heppilegt þarna út af saltinu í sjónum. Svo er hægt að gera þetta með ljósi og hljóðbylgjum. Þá er sýndargirðingin eins og gerviveggur fyrir neðan brú,“ útskýrir Gísli sem undirstrikar að ekki sé öruggt að sýndargirðing leysi vandann. „Okkar tillaga var að setja upp búnað og prófa hvort þetta hafi áhrif.“Gísli Karel HalldórssonAð sögn Gísla er Verkís í sambandi við breskan sérfræðing sem þróað hefur slíkar sýndargirðingar sem settar hafi verið upp erlendis. Þetta séu ekki ný vísindi. „Hann er til í að koma til landsins og rannsaka þetta og vinna með okkur,“ segir Gísli.Kostnaður brot af tjóninu Aðspurður segir Gísli könnun eins og þá sem Verkís leggi til myndu leiða í ljós hvort sýndargirðing gæti dugað ein og sér til að halda síldinni frá Kolgrafafirði eða hvort grípa þurfi til miklu kostnaðarsamari lausna. Girðingin sé alls ekki dýr miðað við aðrar aðferðir sem menn velti fyrir sér. „Og þetta er ekki dýrt miðað við þann skaða sem þetta er að valda, bæði með dauða á verðmætum fiski og svo umhverfisspjöllum sem því fylgir. Við erum að tala um miklu lægri upphæðir, kannski nokkra tugi milljóna, segir Gísli, sem er sjálfur fæddur og uppalinn í Grundarfirði og sendi á dögunum bæjaryfirvöldum þar erindi til að benda á þennan möguleika og ýta við málinu. Bæjarstjórnin segir mikilvægt að stjórnvöld hraði vinnslu málsins þannig að það fáist langtímalausn vegna mögulegs síldardauða í Kolgrafafirði.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira