Innlent

Bandarísk flugsveit gætir loftrýmisins

Brjánn Jónasson skrifar
Bandarískir flugmenn munu æfa aðflug að Akureyrarflugvelli og mögulega flugvellinum á Egilsstöðum.
Bandarískir flugmenn munu æfa aðflug að Akureyrarflugvelli og mögulega flugvellinum á Egilsstöðum. Fréttablaðið/Stefán
Bandarísk flugsveit er væntanleg hingað til lands í næstu viku til að sinna loftrýmisgæslu sem ríki Atlantshafsbandalagsins hafa sinnt hér á landi af og til undanfarin ár.

Alls munu um 220 hermenn taka þátt í verkefninu, að því er fram kemur á vef Landhelgisgæslu Íslands. Af þeim verða um fimmtán staðsettir á Akureyri þar sem staðsetja á þotugildrur og flugvita.

Flugsveitin kemur með F-15 orrustuþotur, C-130 björgunarflugvélar og eldsneytsbirgðavél. Sveitin er væntanleg 12. maí og mun fara af landi brott aftur í byrjun júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×