Símaskráin kemur út í dag Stefán Árni Pálsson skrifar 5. maí 2014 10:26 Telma Eir Aðalsteinsdóttir, verkefnastjóri hjá Já, afhendir Bylgju Dögg Sigurðardóttur, skyndihjálparmanni ársins 2013, og Þórunni Lárusdóttur, verkefnastjóra afmælisárs Rauða krossins, fyrsta eintak Símaskrárinnar 2014. mynd/aðend
Fyrsta eintak Símaskrárinnar 2014 var í morgun afhent Bylgju Dögg Sigurðardóttur, skyndihjálparmanni ársins 2013. Í ár er Símaskráin gefin út í samstarfi við Rauða krossinn á Íslandi á 90 ára afmæli félagsins en í tilefni af afmælisárinu hefur Rauði krossinn hrundið af stað skyndihjálparátaki þar sem áhersla er lögð á að byggja upp kunnáttu og færni almennings í skyndihjálp. Rauði krossinn mun allt árið standa að kynningarherferð þar sem haft er að leiðarljósi að gefa sem flestum landsmönnum þekkingu í skyndihjálp sem afmælisgjöf frá félaginu og auka þannig líkur á að fólk hafi grunnþekkingu á því hvernig hægt er að bjarga mannslífi á neyðarstundu. Fram kemur í tilkynningu frá JÁ að áhersla sé lögð á að kenna fólki að beita endurlífgun, losa aðskotahlut úr hálsi og að bregðast við bruna og blæðingu. Símaskráin í ár inniheldur skyndihjálparkafla frá Rauða krossinum en ásamt honum má víðsvegar í skránni finna ýmsar upplýsingar um skyndihjálp og Rauða krossinn á Íslandi. Á höfuðborgarsvæðinu er Símaskráin 2014 fáanleg í öllum verslunum Símans, Vodafone og Tals, við bensínstöðvar Olís og Skeljungs, í völdum verslunum Krónunnar og á skrifstofu Já í Glæsibæ. Á landsbyggðinni er hægt að nálgast Símaskrána á afgreiðslustöðvum Póstsins, í verslunum Vodafone og Símans á Akureyri og verslunum Krónunnar á Selfossi og Akranesi. Já vil benda á að hægt er koma með eldri Símaskrár til endurvinnslu á bensínstöðvum Olís og Skeljungs, við verslun Símans í Ármúla og á öllum afgreiðslustöðvum Póstsins á landsbyggðinni. „Afmælisár Rauða krossins er tileinkað skyndihjálp og Símaskráin er því góður vettvangur til þess að breiða út þann góða boðskap. Í desember síðastliðnum var gerð könnun á vegum Rauða krossins um kunnáttu landsmanna í þeim fjórum atriðum sem áhersla er lögð á með átakinu, losun aðskotahlutar í hálsi, endurlífgun, réttum viðbrögðum við bruna og blæðingu,“ segir Þórunn Lárusdóttir, verkefnisstjóri afmælisárs Rauða krossins. Hún segir að sú könnun verði endurtekin í lok þessa árs og munum við gera samanburð til að sjá árangur átaksins. „Vegna þess að Símaskráin í ár er tileinkuð skyndihjálp gefst þar frábært tækifæri til að kynna sér rétt viðbrögð á neyðarstundu og hún verður vonandi hvatning fyrir landsmenn að sækja skyndihjálparnámskeið hjá Rauða krossinum. Maður veit aldrei hvenær á reynir." „Það hefur verið einstaklega gaman að fá tækifæri til að vinna að útgáfu Símaskrárinnar 2014 með Rauða krossinum og því frábæra fólki sem þar starfar,“ segir Telma Eir Aðalsteinsdóttir, verkefnastjóri Já. „Það er ánægjulegt að fá tækifæri til að taka þátt í að vekja athygli á og miðla upplýsingum til landsmanna um skyndihjálp í gegnum Símaskrána. Símaskráin fer inn á flest heimili fyrirtæki og stofnanir í landinu og því tilvalið að nýta kynningarmátt hennar með þessum hætti.“
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira