Áttu fótum sínum fjör að launa Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 5. maí 2014 19:30 „
Við áttum fótum okkar fjör að launa." Þetta segir Gestur Jóhannes Árskóg, rekstarstjóri Bílabúðar Benna, en litlu munaði að illa færi þegar ökumaður jeppabifreiðar missti stjórn á bíl sínum á bílaplani búðarinnar á Tangarhöfða í morgun. „Maður hljóp bara, ég er frár á fæti og það bjargaði þessu. Strákarnir voru að vinna í bíl hérna á planinu og þeir bara áttu fótum sínum fjör að launa,“segir Gestur. Að sögn ökumannsins bilaði bensíngjöf jeppans með þeim afleiðingum að hann missti stjórn á ökutækinu. Jeppinn kom á miklum hraða inn á bílaplanið og skall á níu kyrrstæðum bílum áður en honum hvolfdi. Tjónið er mikið og bílarnir flestir gerónýtir, en flestir þeirra eru í eigu starfsmanna bílabúðarinnar. Nokkur viðbúnaður var á svæðinu og sendi slökkviliðið dælubíl og tvo sjúkrabíla á vettvang. Farið var með ökumann jeppans á bráðamóttöku Landspítalans skömmu eftir áreksturinn en samkvæmt upplýsingum frá vaktlækni er hann ekki alvarlega slasaður. Gestur segist þakka fyrir að ekki hafi orðið stórslys. „Þetta hefði getað farið miklu verr. Við sluppum með skrekkinn í þetta sinn.“
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira