Markaveisla í fyrstu deild Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 13. september 2014 16:24 Þróttur vann góðan sigur vísir/daníel
21. umferð 1. deildar karla í fótbolta lauk nú seinni partinn með fjórum leikjum en barist er um sætin frá þrjú til tíu því ljóst er hvaða lið fara upp og hvaða lið falla í 2. deild. Þróttur vann dramatískan sigur á BÍ/Bolungarvík 2-1 fyrir vestan. Matthew Elíasson kom Þrótti yfir á 23. mínútu og var staðan í hálfleik 1-0.Matthías Kroknes Jóhannsson jafnaði metin tuttugu mínútum fyrir leikslok en þegar fjórar mínútu voru eftir af leiknum missti BÍ/Bolungarvík Agnar Darra Sverrisson af velli með rautt spjald. Það nýtti Þróttur sér og tryggði Aron Lloyd Green liðinu sigurinn undir lok leiksins. KA gerði góða ferð á Selfoss þar sem liðið vann 4-2 sigur en Selfoss var 1-0 yfir í hálfleik. Selfoss jafnaði metin í 2-2 þegar þrettán mínútur voru eftir af leiknum en KA var sterkara á lokasprettinum. Víkingur Ólafsvík fórr létt með KV 5-1 á Ólafsvíkurvelli. Eyþór Helgi Birgisson skoraði eina mark fyrri hálfleiks en Einar Már Þórisson jafnaði metin þegar hálftími var eftir.Þorsteinn Már Ragnarsson kom Víkingi aftur yfir sjö mínútum síðar og í kjölfarið fylgdu þrjú mörk. Fyrst skoraði Alejandro Lopez áður en Antonio Mossi skoraði tvö síðustu mörk leiksins. Grindavík skellti botnliði Tindastóls 3-0 á Sauðárkróksvelli. Juraj Grizelj skoraði eina mark fyrri hálfleiks á 6. mínútu. Hann skoraði einnig síðasta markið í uppbótartíma en Alex Freyr Hilmarsson hafði skömmu áður komið liðinu í 2-0. Tindastóll og KV eru fallinn í 2. deild og Leiknir og ÍA leika í Pepsí deildinni á næstu leiktíð. Markaskorarar eru fengnir af urslit.net.
Íslenski boltinn Mest lesið „Búnir að sýna hvað við getum verið lélegir“ Körfubolti Hetja Englands á EM sleit krossband Enski boltinn Lofar frekari fjárfestingum Enski boltinn Sádar eru ekki að fara að byggja HM-leikvang ofan á skýjakljúfi Fótbolti Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta Körfubolti „Getum verið fjandi góðir“ Körfubolti Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 42-31 | Þrot í Þýskalandi Handbolti Dagskráin í dag: Meistararnir á Króknum, Körfuboltakvöld og allskonar Sport Uppgjörið: Valur - Grindavík 55-90 | Taplausir Grindvíkingar kjöldrógu Val Körfubolti Skortir Liverpool breidd þrátt fyrir gríðarleg fjárútlát síðasta sumar? Enski boltinn Fleiri fréttir Sádar eru ekki að fara að byggja HM-leikvang ofan á skýjakljúfi Hetja Englands á EM sleit krossband Lofar frekari fjárfestingum Juventus ræður Spalletti út tímabilið Meistaradeildin skiptir um bjór og Heineken snýr sér að padel Aron Einar kominn á toppinn Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi Fantasýn: „Þessi vörn er eitthvað skrímsli“ Scholes hættir og setur einhverfan son sinn í fyrsta sætið Rúmar tvær milljónir í boði ef þú finnur hundinn hans Aarons Ramsey Carrick í einkaviðtali: Sigurinn á Anfield stór stund fyrir Man. Utd Hefur spilað 16 mínútur og fengið tvö rauð spjöld Bættu Evrópumet AC Milan liðsins með Gullit og Van Basten innanborðs Slot: Engin auka pressa við þetta tap Real Madrid vill stórar skaðabætur frá UEFA „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Bað alla nema þjálfarann afsökunar Vísar slúðrinu til föðurhúsanna Ísak Bergmann lagði upp gegn Bayern „Við tókum bara þá ákvörðun að fara í Svanavatnið“ Albert og Mikael Egill í vondum málum á Ítalíu Palace neitar að sleppa takinu á Liverpool „Eitthvað sem ég mun aldrei gleyma“ Einkunnir Íslands: Þrjár heitastar í frostinu Viktor Bjarki skoraði og lagði upp í fyrsta byrjunarliðsleiknum Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Pedri gæti verið frá keppni til langs tíma Arteta fyrstur stjóranna á fætur Sjá meira