Sigurður hafi ekki beitt blekkingum til að fá féð Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 19. febrúar 2014 15:01 Á myndinni er verjandi Sigurðar, Björn Ólafur Hallgrímsson.
Miðlun lögreglu og ákæruvalds til fjölmiðla um rannsókn á Sigurði Kárasyni og meintum blekkingum hans er óforsvaranleg að mati verjanda hans, Björns Ólafs Hallgrímssonar. Aðalmeðferð málsins fór fram í dag en Sigurður er sakaður um að hafa haft 117 milljónir króna af fimmtán manns. Með því að miðla fréttum af málinu hafi lögreglan brotið gegn lögum um sakamál. Þar komi fram að þeir sem rannsaka mál skuli gæta þess að mönnum verði ekki gert meira tjón, óhagræði eða miski en óhjákvæmilegt er. Þetta hafi leitt til fjölmiðlafárs Sigurði í óhag. Miski hafi hlotist af fyrir Sigurð og fjölskyldu. Sigurður lítur svo á að fjölmiðlaumfjöllunin sé hin raunverulega refsing, án dóms og laga. Verjandi benti á að í þrjú og hálft til fjögur ár hafi Sigurður haft réttarstöðu sakbornings. Það sé langur tími í máli sem aðeins hafi snúist um 16 brotaþola. Sigurður telur að strax við upphaf rannsóknarinnar hafi sú ákvörðun verið legið fyrir að ákæra yrði gefin út. Rannsóknin kunni að hafa litast af því allan tímann og hún hafi verið hlutdræg. Útspilið til fjölmiðla strax í upphafi bendi einnig til þess. Verjandi hans bendir á að ef þetta fær staðist, séu bæði lögreglan og ákæruvaldið vanhæf í málinu. Af þeirri ástæðu ætti því að vísa málinu frá dómi.Rannsóknin tímafrek og umfangsmikil Sækjandi svaraði því að tæplega þrjú ár hefðu liðið frá því rannsókn hófst og henni lauk. Um væri að ræða mjög tímafreka og umfangsmikla rannsókn og mikið af gögnum. Þetta væri ekki langur tími miðað við þá tafsömu vinnu sem þetta mál óneitanlega hefði þurft. Málsmeðferðartíminn hefði ekki farið út fyrir þau mörk sem eðlilegt mætti telja. Fjölmiðlar ynnu sjálfir eftir sínum reglum og hvorki lögreglan né ákæruvaldið stjórnaði þeim. Fjölmiðlar hefðu sjálfir talað við brotaþola og aflað sér upplýsinga um málið. Verjandinn benti á að í upphafi umfjöllunar í fjölmiðlum málsins hafi það komið fram að málið snérist um allt að 100 manns og 300 til 600 milljónir króna. Eftir stæðu rúmar 100 milljónir og 15 manns sem hefðu kært. Málið væri því ekki eins umfangsmikið og gefið hefði verið í skyn.Lán ekki lengur lán Í skýrslutökum hjá lögreglu hafi flestum vitnunum verið sagt að fjöldi manns hefði leitað til lögreglu vegna Sigurðar. Verjandinn segir slíkt ekki huggulega leið til þess að byrja skýrslutöku. Í einhverjum tilvikum hafi einfaldlega verið um lán að ræða þegar fólkið afhendi Sigurði peninga. Það hafi afhent peningana á eigin ábyrgð. Vinur Sigurðar sem lánaði honum hafi til að mynda vitað af bágri fjárhagsstöðu Sigurðar. Verjandi segir viðleitni lögreglu hafa staðið til að fá fólk til þess að fara ofan af því að segja að um lán hafi verið að ræða. En í skýrslutökum hafi það komið fyrir í einhverjum tilvikum að upptaka hafi verið stöðvuð. Þegar upptaka hefði var sett í gang á ný hafi vitni breytt vitnisburði sínum. Það sem áður hafi verið kallað lán hafi verið kallað öðrum nöfnum. Í þeim tilvikum þar sem augljóst sé að hann var að fá lán frá fólkinu eigi að sýkna af ákæru vegna fjársvika. Verjandinn tók fram að til þess að hægt væri að refsa fyrir fjársvik yrði ásetningur að vera til staðar en svo væri ekki í máli Sigurðar. Hann hefði ekki beitt blekkingum til þess að fá féð.
Tengdar fréttir Segir Sigurð hafa lokkað fólk til þess að leggja fram fé Sigurður Kárason notaði fjórar aðferðir til þess að fá fólk sem hann er nú ákærður fyrir að hafa blekkt til að afhenda sér fé að því er fram kom í málflutningi sækjanda fyrir dómi í dag. 19. febrúar 2014 14:09 Náðaði svikahrappurinn Sigurður Kárason var ekki viðstaddur þegar þingfesting í máli hans fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 11 í morgun. Forsetinn náðaði hann á sínum tíma en Björn Bjarnason hefur bent á að forsetinn hafi minnst með þá ákvörðun að gera. 5. september 2013 11:27 Sakaður um að svíkja fé af presti og flóttamanni Sigurði Kárasyni er gefið að sök að hafa svikið út 117 milljónir króna af 16 manns. 17. febrúar 2014 14:29 Mest lesið Erlendur ferðamaður féll í Brúará Innlent Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Innlent Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Innlent „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Innlent Stafræn skírteini hætta í símaveskjum Innlent Íbúar leiti réttar síns vegna flautsins: „Þetta er lýðheilsuógn“ Innlent Fær bætur 45 árum eftir föðurmissinn: „Varð eiginlega tíu ára aftur“ Innlent Ein á móti rýmkuðu sorgarleyfi Innlent Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Erlent Ásthildur Lóa skammar þingheim Innlent Fleiri fréttir Þakklát stjórnarandstöðunni „Þegar fjármagnið klárast, þá klárast líka aðgengið“ Hressar og skemmtilegar systur með geitur á Geysi Loka hluta útsýnispallsins vegna aurskriðu Sjávarútvegurinn standi höllum fæti Starfsáætlun Alþingis felld úr gildi Höggin dynji á sjávarútveginum og áhugi kvenna á iðnstörfum minnkar Erlendur ferðamaður féll í Brúará Ein á móti rýmkuðu sorgarleyfi „Erum ekki dúkkur sem Snorri getur sagt fyrir verkum“ Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Missti nánast sjónina þegar sláttuorf skaut steini í annað augað Mál áfengisverslananna komin til ákærusviðs, aftur Frumvarp um farþegalista samþykkt Kolbrún segir gesti nefndarinnar handbendi minnihlutans Löng bílaröð meðan hæðarslá er lagfærð Öllum sagt upp: „Ekkert verið að hugsa um félagsmiðstöðvastarf“ Launahækkunin mun fara í gegn en kerfið endurskoðað í haust Búa sig undir margmenni á Hengil Ultra Ásthildur Lóa skammar þingheim Íbúar leiti réttar síns vegna flautsins: „Þetta er lýðheilsuógn“ Slævandi lyf og lágt sætisbak dráttarvélar orsakir banaslyss Launahækkanir ráðamanna og rifrildi Trumps og Musks í hádegisfréttum Aflýsa óvissustigi vegna norðanáhlaupsins Tveggja ára fangelsi fyrir ofbeldi gegn tveimur konum og karli Aflamark þorsks lækkað og reiknað með að stofninn minnki áfram Fær bætur 45 árum eftir föðurmissinn: „Varð eiginlega tíu ára aftur“ Neitaði að blása í áfengismæli Stafræn skírteini hætta í símaveskjum Mörgu ábótavant við byggingu Brákarborgar Sjá meira
Segir Sigurð hafa lokkað fólk til þess að leggja fram fé Sigurður Kárason notaði fjórar aðferðir til þess að fá fólk sem hann er nú ákærður fyrir að hafa blekkt til að afhenda sér fé að því er fram kom í málflutningi sækjanda fyrir dómi í dag. 19. febrúar 2014 14:09
Náðaði svikahrappurinn Sigurður Kárason var ekki viðstaddur þegar þingfesting í máli hans fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 11 í morgun. Forsetinn náðaði hann á sínum tíma en Björn Bjarnason hefur bent á að forsetinn hafi minnst með þá ákvörðun að gera. 5. september 2013 11:27
Sakaður um að svíkja fé af presti og flóttamanni Sigurði Kárasyni er gefið að sök að hafa svikið út 117 milljónir króna af 16 manns. 17. febrúar 2014 14:29