Innlent

Tveimur mönnum bjargað úr sjálfheldu í nótt

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Frá björgunaraðgerðunum í nótt.
Frá björgunaraðgerðunum í nótt. MYND/GÍSLI SÍMONARSON
Tveimur ungum mönnum var bjargað úr sjálfheldu á Esju um í nótt. Þeir voru að klifra Einfarann, þekkta klifurleið í Eilífsdal í Esju, rétt eftir miðnætti í gær þegar þeir lentu í vandræðum.  

Mennirnir, sem eru um tvítugt, náðu að tryggja sig og hringja eftir aðstoð. Sérhæft fjallabjörgunarfólk frá björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu var kallað út. Mennirnir kveiktu á blysum til að vísa björgunarmönnum leiðina en staðsetning þeirra var óljós.

35 manns komu að björgunaraðgerðunum í nótt sem tóku um fjórar klukkustundir.MYND/GÍSLI SÍMONARSON
Björgunarmennirnir þurftu að síga niður fyrir brúnina þar sem mennirnir voru undir og hífa þá upp.

Búið var að hífa þá upp um klukkan fjögur. Mennirnir reyndust heilir á húfi en annar var þó orðinn nokkuð kaldur. Þeir voru komnir í bíl um klukkan 5:30 í morgun. Björgunaraðgerðir stóði í hátt í fjórar klukkustundir og 35 manns tóku þátt í þeim. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×