Má greiða móður bætur fyrir sonarmissi Brjánn Jónasson skrifar 6. maí 2014 07:30 Sonur konu sem krefur ríkið um bætur lést á Landspítalanum árið 2001. Bótakröfu hennar var hafnað árið 2012. Fréttablaðið/Vilhelm
Dráttur á málsmeðferð landlæknis vegna bótakröfu móður vegna læknamistaka sem kostuðu son hennar lífið varð til þess að ríkislögmaður hafnaði bótakröfu móðurinnar. Umboðsmaður Alþingis telur að ekkert í lögum komi í veg fyrir að heilbrigðisráðherra bæti konunni sonarmissinn. Ríkislögmaður hafnaði bótakröfunni á þeim grundvelli að hún væri of seint komin, réttur móðurinnar til bóta væri fyrnd. Sonur konunnar lést árið 2001, og bótakröfunni var hafnað árið 2012. Móðirin sendi umboðsmanni Alþingis erindi vegna málsins, og kvartaði undan töfum á afgreiðslu málsins hjá landlækni og afgreiðslu ríkislögmanns. Umboðsmaður hefur ekki lokið umfjöllun um málið, en bendir móðurinni á að krefja heilbrigðisráðuneytið um bætur. Í ákvörðun ríkislögmanns segir að engu breyti þó landlæknir hafi verið með málið til skoðunar lengi. Þá segir í svari Velferðarráðuneytisins við fyrirspurn umboðsmanns að álitsgerð landlæknisembættisins sé ekki forsenda fyrir bótakröfu, og umfjöllun embættisins rjúfi ekki fyrningu. Umboðsmaður Alþingis hefur í kjölfarið skrifað heilbrigðisráðherra og ríkislögmanni bréf þar sem komið er á framfæri ábendingum vegna málsins, þó málinu sé ekki formlega lokið hjá umboðsmanni. Í bréfi sínu bendir umboðsmaður Alþingis á að ákvörðunarvald um bætur liggi hjá heilbrigðisráðuneytinu, ekki ríkislögmanni. Þá bendir umboðsmaður Alþingis á að þó að þau sjónarmið séu uppi að krafan sé fyrnd sé ekkert í lögum sem banni ráðuneytinu að taka ákvörðun um að rétta hlut móðurinnar vegna sonarmissisins „telji [ráðuneytið] á annað borð að stjórnvöld hafi valdið henni tjóni með bótaskyldri háttsemi“.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira