Geitaræktin lifir ekki af án aukins stuðnings Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. ágúst 2014 16:16 Geitum hefur fjölgað jafnt og þétt á Íslandi á síðustu árum.
Starfshópur á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem skipaður var í mars á þessu ári, hefur skilað inn tillögum sínum að stuðningsaðgerðum „sem efla íslenska geitfjárstofninn og stuðla að vernd hans og viðgangi,“ eins og fram kemur í skýrslu hópsins á vef atvinnuvegaráðuneytisins. Einungis 849 vetrarfóðraðar geitur voru til í landinu í árslok 2012 en geitfjáreign er afar dreifð og eru þær að mestu haldnar í litlum hjörðum. Geitfjárstofninn hefur líklega aldrei verið stór og frá fyrstu áreiðanlegu talningu 1703 hefur fjöldinn nær alltaf verið innan við 1000 gripir. Undantekning eru þó árin frá 1914 og framundir seinna stríð, en stofninn komst í nærri 3.000 dýr árið 1930.Geitum á Íslandi hefur þó fjölgað á síðustu árum síðustu árum en alls hafa rúmlega 300 geitur bæst í geitastofn landsins frá árinu 2007. Starfshóp ráðherra skipuðu þau Torfi Jóhannesson, sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, sem var gegndi formennsku, Birna Kristín Baldursdóttir, Erfðalindasetri Landbúnaðarháskóla Íslands og Sigurður Eyþórsson hjá Bændasamtökum Íslands.Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.„Vinnuhópurinn tekur undir þær tillögur sem áður hafa komið fram frá erfðanefnd landbúnaðarins um að nauðsynlegt sé að styrkja rekstrargrundvöll geitfjárræktarinnar. Ljóst virðist að mjög fáir ræktendur halda fleiri dýr en sem nemur opinbera stuðningnum og þannig næst ekki nauðsynlegur grundvöllur fyrir tekjustreymi af búskapnum. Ekki er hægt að reikna með því að geitfjárrækt komist af með minni stuðning en sauðfjárræktin, eigi hún að dafna sem búgrein,“ segir í skýrslunni en niðurstöður hópsins voru í fimm liðum:Hópurinn leggur til að nú þegarverði auknu fé veitt til stofnverndar geitastofnsins með sérstöku framlagi ríkisins til erfðanefnd landbúnaðarins. Framlagið verði nýtt til að hækka verulega og afnema takmarkanir á því hversu margar geitur á hverju búi njóta stuðnings. Skilyrða þarf stuðning við þá sem taka þátt í skýrsluhaldi. Áætlað er að þetta muni kosta um kr. 2 milljónir á ári.Hópurinn leggur til að við endurskoðun sauðfjársamnings (samningur um starfsskilyrði sauðfjárræktarinnar dags. 25. janúar 2007 með síðari breytingum) verði innleitt sérstakt stuðningsform fyrir geitfjárrækt, sambærilegt þeim stuðningi sem veittur verður í sauðfjárækt. Í stuðningsaðgerðum þarf að vera hvati til þess að geitfjárræktarbú verði af þeirri stærð að vinnsla afurða sé möguleg.Hópurinn telur mikilvægt að haldið verði áfram uppbyggingu á sæðisbanka með frystu hafrasæði sem styðja myndi við markvissa ræktun innan stofnsins en einnig þjóna sem öryggisnet ef illa færi. Söfnun sæðis þyrfti að fara fram á tveggja til þriggja ára fresti. Lagt er til að þessi tillaga komi til skoðunar við næstu endurskoðun búnaðarlagasamnings.Hópurinn telur mikilvægt að komið verði á fót rafrænni ættbók þar sem skrá mætti allar tiltækar upplýsingar um stofninn s.s. ættir, útlitseinkenni, afurðir, sjúkdóma, vanhöld og o.fl. Ættbók er grunnur að ræktun og verndaraðgerðum og því að sæðingar skili árangri. Sambærileg ættbók er til staðar fyrir sauðfé. Lagt er til að þessi tillaga komi til skoðunar við næstu endurskoðun búnaðarlagasamnings.Hópurinn leggur til að stuðlað verði að auknum rannsóknum á íslenska geitastofninum og afurðum hans með það fyrir augum að auka þekkingu á erfðafræðilegri stöðu stofnsins og sérstöðu afurða. Lagt er til að þessi tillaga komi til skoðunar við næstu endurskoðun búnaðarlagasamnings og sauðfjársamnings. Tillögur hópsins bárust ráðherra þann 15. maí síðastliðinn.
Tengdar fréttir Heimsfrægar geitur í útrýmingarhættu Ef fram fer sem horfir verður meirihluta geita í eina geitaræktarbúi landsins slátrað eftir rúman mánuð, þrátt fyrir að íslenski geitastofninn sé á válista yfir dýr í útrýmingarhættu. Það sem gæti þó komið til bjargar er söfnun sem erlendir aðilar hafa ýtt úr vör, en þar vekja hlutverk geitana í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones mikla athygli. 7. ágúst 2014 20:00 Íslenskar geitur drepnar af dreka í Game of Thrones Tuttugu íslenskar geitur frá Háafelli í Borgarfirði voru notaðar við tökur á atriði í Game of Thrones þáttunum sem sýnt var í gær. 13. maí 2014 17:11 Fjöldi manns vill taka geitur í fóstur Eftiri innslag Íslands í Dag um geitafjárræktarbúið Háafell í Borgarfirði hefur fjöldi fólks haft samband við bóndann og vill taka geit í fóstur. 24. mars 2014 17:00 Mest lesið Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Innlent Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Innlent Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Innlent „Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ Innlent Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Innlent Fjórir handteknir eftir alvarlega líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Ráðist var á ungmenni í strætóskýli Íslendingar á flótta, nýr listi og fegrunaraðgerðir karla Óþolandi tafir vegna ágreinings við landeigendur heyri sögunni til Bein útsending: Kynna lista Viðreisnar borginni „Enginn meira hrelldur en ég þegar rödd Eiríks hljómaði á línunni“ Dómur barnaníðingsins Brynjars staðfestur Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Hættur við lágmarksíbúafjölda í sveitarfélögum Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Breiðu bökin verði skattlögð svo forsendur kjarasamninga standist Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Ákvarðanir teknar af heift en ekki skynsemi Andstæðingum borgarlínu hafi verið bolað af lista Fjórir handteknir eftir alvarlega líkamsárás „Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ ASÍ segir niðurskurðaraðgerðir ekki koma til greina Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Skrifstofustjórinn fær ekki áheyrn og situr uppi með feitan reikning Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Ekki í fyrsta skipti sem oddvitarnir kljást um bílastæðamál Vilja gagnagrunn um hatursorðræðu og hatursglæpi á Íslandi Meiriháttar líkamsárás og sérstakt innbrotaeftirlit Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Tólf prósent Íslendinga á bótum Næsta skref að úttekt verði gerð á umfangi bælingarmeðferða Bændur á loðnuvertíð til að eiga fyrir áburðinum Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Önnur hver stelpa beðin um nektarmyndir og fær klámfengin skilaboð Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu í flug Sjá meira
Heimsfrægar geitur í útrýmingarhættu Ef fram fer sem horfir verður meirihluta geita í eina geitaræktarbúi landsins slátrað eftir rúman mánuð, þrátt fyrir að íslenski geitastofninn sé á válista yfir dýr í útrýmingarhættu. Það sem gæti þó komið til bjargar er söfnun sem erlendir aðilar hafa ýtt úr vör, en þar vekja hlutverk geitana í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones mikla athygli. 7. ágúst 2014 20:00
Íslenskar geitur drepnar af dreka í Game of Thrones Tuttugu íslenskar geitur frá Háafelli í Borgarfirði voru notaðar við tökur á atriði í Game of Thrones þáttunum sem sýnt var í gær. 13. maí 2014 17:11
Fjöldi manns vill taka geitur í fóstur Eftiri innslag Íslands í Dag um geitafjárræktarbúið Háafell í Borgarfirði hefur fjöldi fólks haft samband við bóndann og vill taka geit í fóstur. 24. mars 2014 17:00