Nauðsynlegt að taka á húsnæðisvandanum Höskuldur Kári Schram skrifar 15. mars 2014 12:00 Óskar Bergsson, oddviti framsóknarmann í Reykjavík. „
ESB-umræðan er ekki jafn óþægileg fyrir okkur og samstarfsflokkinn. Þetta er umræða sem er í gangi og hún er hávær. En hún á eftir að ganga yfir og ég held að hún muni ekki hafa áhrif á úrslit kosninganna. Ég held að menn verði að horfa á það hvað þessi ríkisstjórn er að gera sem er skuldaleiðrétting, afnám verðtryggingar, hallalaus fjárlög og 2% verðbólga. Mér finnst að það sé verið að skamma núverandi ríkisstjórn fyrir það sem gamla ríkisstjórnin, sem hóf þessar viðræður við ESB, hefði átt að gera. Hún hefði átt að spyrja þjóðina áður en lagt var af stað. Þá stæðum við ekki uppi með þetta vandamál í dag,“ segir Óskar Bergsson, oddviti framsóknarmanna í Reykjavík.Vantar húsnæði fyrir venjulegt fólk Óskar segir að húsnæðisvandinn verði meðal stærstu mála í komandi kosningum. „Ég held að ástandið á húsnæðismarkaðnum sé tilkomið vegna þess að síðastliðin sex ár hefur nánast ekkert verið byggt af húsnæði í Reykjavík nema kannski í Skuggahverfinu sem er ekki fyrir þennan hefðbundna kaupendahóp. Við þurfum að byggja meira af venjulegu húsnæði fyrir venjulegt fólk. Við teljum að það sé best að gera það þar sem við getum lagt fram ódýrustu lóðirnar. Er ég þá að tala um Úlfarsárdalinn sem núverandi meirihluti er búinn að taka út úr aðalskipulagi því hann vill leggja meiri áherslu á byggðina nær miðborginni. Lóðaverð er hins vegar talsvert hærra í miðborginni og það mun hafa áhrif á fasteignaverð. Við teljum að til þess að geta boðið venjulegu fólki upp á venjulegt húsnæði þurfum við að gera það líka í úthverfunum. Við þurfum líka að taka tillit til kröfu þeirra um þéttingu byggðar. Við sjáum það fyrir okkur að það sé ekki í Vatnsmýrinni þar sem flugvöllurinn er. Við viljum að hann verði áfram þar. En það eru þéttingarreitir á Laugaveginum sem eru tilbúnir, á Hafnarsvæðinu og svo á svæðinu frá Hlemmi austur Laugaveginn, Suðurlandsbrautina og að Skeifunni. Við teljum að Skeifan komi vel til greina sem þéttingarsvæði í framtíðinni,“ segir Óskar.Vill taka á hallarekstri Óskar telur nauðsynlegt að taka til hendinni þegar kemur að rekstri borgarinnar og segir mögulegt að ná fram hagræðingu án þess að hækka gjöld á borgarbúa. „Ég mun taka á [hallarekstrinum] með svipuðum hætti og ég gerði í hruninu 2008 til 2010. Þá var ég formaður borgarráðs og við sáum fram á gríðarlega mikla erfiðleika í fjármálum. Ekki bara hjá borginni heldur hjá landsmönnum og hjá ríkinu. Við gerðum þverpólitíska aðgerðaáætlun þar sem allir flokkar komu að og gerðum áætlun út kjörtímabilið. Það var áætlun sem gerði ráð fyrir að engar gjaldskrár yrðu hækkaðar. Útsvarið yrði ekki nýtt í botn og grunnþjónustan yrði varin. Við ákváðum að fara í verklegar framkvæmdir og sem dæmi get ég nefnt Sleggjuna sem er síðasti áfangi Hellisheiðarvirkjunar sem var farið í eftir hrun. Við spöruðum í innkaupum og starfsmenn borgarinnar tóku fullan þátt í þessu með okkur og stóðu sig frábærlega. Svo var ráðningarbann sem þýddi að það var bannað að ráða í störf sem losnuðu nema að fara í gegnum ákveðið starfatorg sem var starfrækt þá. Þegar við skoðuðum útkomuna úr þessu eftir eitt og hálft ár þá hafði fækkað um þúsund starfsmenn hjá borginni. Við erum að tala um kostnaðarlið sem er 3 til 6 milljarðar á ári bara í fækkun starfa. Ég er ekki að segja að við myndum gera það nákvæmlega svona en í þessa veru myndi ég fara inn í hagræðingu hjá borginni,“ segir Óskar.
Kosningar 2014 fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira