Innlent

„Miðaldra konur áreiti unga drengi kynferðislega“

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Valli/GVA
„Þessar konur eiga að skammast sín. Svona á ekki að eiga sér stað og á ekki að þrífast. Ef mér er misboðið og mér finnst eitthvað rangt, þá stíg ég fram,“ segir Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum, í samtali við Vísi.

Margrét tilkynnti í pistli á Facebook í gærkvöldi að hún gæti ekki setið á sér og yrði að greina frá því sem gerðist á Kvennakvöldi Breiðabliks á laugardagskvöldið.

„Er búin að vera vitni að því tvö ár í röð að miðaldra konur áreiti unga drengi kynferðislega,“ skrifaði Margrét Júlía.

Hún segir að þar hafi konur farið fram á að drengirnir sem voru að þjóna færu úr að ofan. Um var að ræða knattspyrnumenn Kópavogsliðsins sem Margrét telur að hafi verið einhvers staðar á milli 18 og 20 ára.

Fésbókarfærsla Margrétar Júlíu.Mynd/Skjáskot
„Og meira segja átti að hefja uppboð á nokkrum þeirra,“ skrifaði Margrét. Hún bendir á að árið 2013 hafi nokkrum konum tekist að láta einhverja piltanna fara úr að ofan og selja þeim happdrættismiða þannig.

„Ég hefði getað grátið af skömm fyrir kynsystrum mínum og vegna þessarar ömurlegu stöðu sem drengirnir voru settir í.“

Margrét fór tvisvar sinnum fram á að þetta yrði stöðvað. Henni væri misboðið, þetta væri niðurlægjandi, dónalegt og kynferðislegt áreiti. Hún ræddi einnig við drengina og segir þá ekki hafa liðið vel yfir þessu.

„Hvað myndu konur segja ef svona hátterni væri á karlakvöldum?“

„Það er ömurlegt þegar maður upplifir svona. Konur sem berjast fyrir jafnrétti kynja og vernd kvenna gagnvart ofbeldi eiga ekki að leika þennan leik,“ segir Margrét.

Uppfært klukkan 10:00

Breiðablik sendi tölvupósts til Vísis nú fyrir stundu vegna málsins

V/fréttar um kvennakvöld Breiðabliks

Það er afar miður að reynsla þessa gests á samkomu á vegum deildarinnar hafi verið með þeim hætti sem hún lýsir.

Knattspyrnudeild Breiðabliks vill hafa í heiðri siðreglur félagsins og jafnréttisstefnu knattspyrnudeildarinnar. Hún mun kynna reglurnar fyrir aðstandendum samkomunnar og brýna fyrir þeim að gera það sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að upplifun gesta verði með þessum hætti.

Knattspyrnudeild Breiðabliks




Fleiri fréttir

Sjá meira


×