Ógnvaldur í undirdjúpunum horfir til Íslands Jakob Bjarnar skrifar 2. maí 2014 15:46 Jónas P. Jónasson hjá Hafró segir menn fylgjast vel með en kóngakrabbinn er skaðræðisskepna -- étur allt sem fyrir verður sér til viðurværis.
Svo virðist sem kóngakrabbi sé farinn að huga að landnámi við Íslandsstrendur. Kóngakrabbi er mikill vágestur og skilur eftir sviðna jörð þar sem hann fer um sjávarbotninn. Áhöfnin á Sigurði Ólafssyni SF 44 veiddi í vikunni kóngakrabba í humartroll í Breiðamerkurdýpi. Þetta er fyrsti kóngakrabbinn sem veiðist við Íslandsstrendur svo vitað sé, segir Jónas P. Jónasson sérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun Íslands. „Jú, það ku vera rétt. Þetta er fyrsta eintakið sem finnst við Ísland. Við vitum af nokkrum eintökum sem hafa veiðst rétt norður af Bergen en aðallega er hann bundinn við svæði mjög norðarlega, norðan Tromsö, þannig að það er langt í næsta fundarstað.“Mikill vágestur Jónas segir að þetta gæti orðið áhyggjuefni sé litið til framtíðar. Koma verði í ljós hvort annað eintak skjóti upp kollinum. Náttúruverndarráð Noregs vill að kóngakrabbar verði álitin umhverfisógn en ekki nytjategund og að veiðar á þeim verði auknar til þess að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. Krabbinn er mesti vargur og leggst til dæmis á síldar- og loðnuhrogn. Þurfa Íslendingar að hafa af þessu þungar áhyggjur? „Þetta eru alveg nýjar fréttir fyrir okkur. En, það er alveg rétt, í Noregi hafa menn haft áhyggjur af útbreiðslu þessa krabba við norðurströnd Noregs. Og sunnan vissrar línu eru veiðar alveg frjálsar. Og menn reyna að hefta útbreiðslu þessarar tegundar suður. En, svo má líka benda á það að nyrst í Noregi eru stundaðar nokkuð arðbærar veiðar á þessari tegund. Þetta er arðsöm veiðitegund en vissulega kemur hann til með að hafa gríðarleg áhrif á allt botndýralíf þar sem hann nær fótfestu.“Skilur eftir sig sviðna jörð Kóngakrabbinn skilur eftir sig sviðna jörð þar sem hann hefur farið um sjávarbotninn. „Já, væntanlega... svona stórt dýr þarf töluverðan lífmassa til að halda sér á lífi og sér til viðurværis. Hann kemur til með að hafa veruleg áhrif á botndýrafánu þar sem hann fer um.“ Kóngakrabbinn getur orðið mjög stór, þeir allra stærstu ná allt að tveggja metra faðmstærð eða á milli klóa. Kóngakrabbar voru settir út af Rússum við strendur Kólaskaga við Norður-Noreg á árunum 1960-1970 en menn vildu sjá til með það hvort hann mundi ná að stækka og síðan ætluðu menn að veiða hann til matar. Þannig að þið fylgist vel með? „Já, við fylgjumst auðvitað með og komum til með að kanna þetta, fylgjast vel með hjá sjómönnum hvað er að gerast og einnig í okkar leiðöngrum, hvort við sjáum fleiri dýr af þessari tegund.“
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent Fleiri fréttir Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Sjá meira