Uppbótartíminn: Varnarleikur eins og í sjötta flokki | Myndbönd 26. ágúst 2014 10:00 KR-ingar unnu fimmta leikinn í röð í öllum keppnum. vísir/stefán
Sautjánda umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu kláraðist í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum nótum. FH er á toppi deildarinnar eftir sigur í Víkinni, en Stjarnan tapaði stigum á móti Breiðabliki á heimavelli. Þórsarar töpuðu enn einum leiknum og Fram er í vondum málum eftir tap gegn KR sem er ekki búið að segja sitt síðasta í toppbaráttunni.Umfjöllun og viðtöl úr öllum sex leikjum umferðarinnar:KR - FramFylkir - ValurVíkingur - FHFjölnir - KeflavíkStjarnan - BreiðablikÍBV - ÞórHólmar Örn Rúnarsson reynir fyrirgjöf en Aron Elís Þrándarson til varnar.vísir/gettyGóð umferð fyrir ...... FH-inga Þrátt fyrir að lenda undir í Víkinni stóðu FH-ingar uppi með 3-2 sigur og tveggja stiga forystu á toppi deildarinnar þegar fimm umferðir eru eftir (Toppliðin fjögur eiga öll einn leik til góða). Á meðan FH hafði sigur á nýliðunum tapaði Stjarnan stigum á móti Breiðabliki á heimavelli sem gefur FH smá stuðpúða fyrir lokasprettinn.... Fylkismenn Árbæingum líður svo vel í lautinni. Liðið vann þriðja leikinn af fjórum þegar það lagði lánlausa Valsmenn, 2-0, og safnaði alls þrettán stigum af 21 mögulegu í sjö leikja heimaleikjarispu sinni. Lautar-Berti í fullu fjöri og allt í einu er Fylkir hætt að berjast um fall heldur komið í baráttu um Evrópusæti. Skjótt skipast veður í lofti þegar menn vinna fótboltaleiki í jafnri deild.... Jonathan Glenn, framherja ÍBV Trínidadinn magnaði skoraði bæði mörk ÍBV í 2-0 sigri á Þór er fyrstur til að komast í tveggja stafa tölu í markaskorun í Pepsi-deildinni. Hann er kominn með tíu mörk og er sá fyrsti sem skorar tíu mörk fyrir 1. september í þrjú ár. Eyjamenn kvöddu líklega falldrauginn og áfram heldur Glenn að skora. Hann var að skora í sjötta heimaleiknum í röð.Valsmenn eru búnir að gefa Evrópudrauminn upp á bátinn.vísir/valliErfið umferð fyrir ...... Valsmenn Lærisveinar Magga Gylfa töpuðu þriðja leiknum í röð, en frammistaða þeirra í Árbænum var ekki til útflutnings. Þrátt fyrir að vera aðeins fimm stigum frá Evrópusæti gaf Magnús það út eftir leikinn að draumur þeirra um Evrópu væri dáinn. Markmiði sumarsins ekki náð og þungt yfir Hlíðarendapiltum þessa dagana.... Orra Frey Hjaltalín, miðvörð Þórs Verri varnarleik en Orri Freyr sýndi í fyrra marki ÍBV á Hásteinsvelli á sunnudaginn er tæplega hægt að finna. Hörður Magnússon líkti tilburðum hans í Pepsi-mörkunum við tíu ára drengi á Shell-mótinu, en Orri Freyr lét langa spyrnu Abels Dhaira í marki ÍBV fara yfir sig og réð svo ekkert við Jonathan Glenn sem skoraði. Orri alls ekki átt gott tímabil frekar en aðrir varnarmenn Þórs.... Góðan varnarleik Orri Freyr var ekkert eini maðurinn sem gerði afdrifarík varnarmistök. Það er ávallt sagt að mörk séu skoruð eftir mistök einhvers, en mikið var um slíkt í umferðinni. Kjartan Henry Finnbogason skoraði mark fyrir KR dauðafrír í teignum, KR-ingar fengu mark á sig úr aukaspyrnu utan af velli, Ívar Örn Jónsson, leikmaður Víkings, var sofandi í fyrsta marki FH og Aron Elís Þrándarson á sök á fyrirgjöfinni sem skóp annað mark FH. Damir Muminovic gleymdi Veigari Páli Gunnarssyni fyrir aftan sig í Garðabænum sem kostaði jöfnunarmark og svona má lengi telja. Haugur af mistökum hjá varnarmönnum í umferðinni.Blikar skora og skora en fá alltaf bara eitt stig.vísir/valliTölfræðin: *Eyjamenn eru búnir að ná í 10 stig af 12 mögulegum út úr síðustu fjórum heimaleikjum sínum í Pepsi-deildinni og markatala liðsins í þeim er +6 (9-3). *ÍBV-liðið er búið að skora í öllum 9 heimaleikjum sínum í Pepsi-deildinni í sumar. *Þórsliðið hefur aðeins náð í 1 stig af 27 mögulegum í útileikjum sínum í Pepsi-deildinni í sumar (4 prósent stiga í boði). *Þórsarinn Chukwudi Chijindu er búinn að spila í 513 mínútur í Pepsi-deildinni í sumar án þess að skora. *Fylkir hefur náð í 7 af 9 stigum í boði síðan að Finnur Ólafsson kom inn í liðið og verið yfir í 164 mínútur í þeim (af 270, 61 prósent). *Fylkismenn hafa unnið þær 217 mínútur sem Finnur Ólafsson hefur spilað í Pepsi-deildinni í sumar með markatölunni +5 (6-1). *Valsmenn töpuðu þriðja leik sínum í röð og var það að gerast í annað skiptið í sumar. *Valsliðið er stigalaust í síðustu þremur leikjum sínum á móti Fram, Stjörnunni og Fylki en náði í 7 stig á móti sömu liðum í fyrri umferðinni. *Breiðablik varð aðeins fjórða liðið í sögunni í efstu deild til að gera 10 jafntefli á einu tímabili. *Breiðablik hefur aðeins tapað 2 af fyrstu 11 deildarleikjum sínum undir stjórn Gumma Ben. *Breiðablik hefur skorað 11 mörk í síðustu fimm leikjum sínum en þau hafa aðeins skilað liðinu 7 stigum. *Stjarnan varð aðeins þriðja félagið í sögu efstu deildar á Íslandi til að fara taplaust í gegnum 16 fyrstu deildarleiki sína á tímabili. *Ólafur Karl Finsen hefur skorað 5 af 7 mörkum sínum í Pepsi-deildinni í sumar á síðustu 17 mínútunum í fyrri hálfleik. *Stjarnan varð fyrsta liðið í sumar til þess að skora 30 mörk í Pepsi-deildinni. Þór var fyrst í 10 mörkin (22. maí) og Stjarnan skoraði sitt 20. mark á undan öllum öðrum (20. júlí).Það var oft hart tekist á í Víkinni í gær.vísir/stefánSkemmtilegir punktar úr boltavaktinni: Guðmundur Marinó Ingvarsson á Víkingsvelli „Leikskýrslan er komin og Ólafur Þórðarson þjálfari Víkings ákvað að svara styrknum á bekk FH, þar eru m.a. Sam Hewson og Atlarnir, með því að setja Aron Elís Þrándarson á bekkinn. Það er jú gott að geta skipt sterkum leikmönnum inn á.“Ingvi Þór Sæmundsson á Fjölnisvelli: „Frans Elvarsson lítur út eins og Sick Boy úr Trainspotting með þetta aflitaða hár.“Anton Ingi Leifsson á Hásteinsvelli: „Jæja. Nú fer hver að vera síðastur til að troða inn marki. Ég kom varla hérna til Eyja til að sjá markalaust jafntefli, ég trúi því ekki!“Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar: Stefán Logi Magnússon, KR - 8 Ólafur Páll Snorrason, FH - 8 Þorri Geir Rúnarsson, Stjörnunni - 8 Elfar Freyr Helgason, Breiðabliki - 8 Henry Monaghan, Víkingi - 3 Páll Olgeir Þorsteinsson, Víkingi - 3 Emil Pálsson, FH - 3 Ellert Hreinsson, Breiðabliki - 3 Umræðan #pepsi365Spái því að Fylkir taki seinasta Evrópusætið í pottinum, gott leikja program eftir sbr. næstu lið og eru á góðu rönni #fotbolti#Pepsi365 — Haraldur Pálsson (@haraldurp) August 26, 2014Þórsliðið í ár er lélegra en liðið 2002. Hélt það væri ekki hægt. #Pepsi365 — Kristján Sigurðsson (@kristjanoli) August 25, 2014Af hverju er ekki löngu búið að setja Benny Hill lagið undir þegar það er fjallað um Þór í pepsi mörkunum? #pepsi365#freecomedy — Guðni Þ. Guðjónsson (@gudnigudjons) August 25, 2014Eru 214 áhorfendur á Fjölnisvelli ekki einhverskonar met? #pepsi365#Hrikalegt — Garðar Gunnar (@gardargunnar) August 25, 2014Aldrei víti á Höskuld #Pepsi365 — Hafþór Steinþórsson (@HaffiSteinthors) August 25, 2014Þessi fyrirgjöf Óla Palla í fyrsta markinu er bara eitthvað...hann horfir ekki einu sinni inní teiginn ! Samt geggjuð sending #Pepsi365 — Guðlaugur Valgeirs (@GulliValgeirs) August 25, 2014Henry Monaghan er náttúrulega vonlaus leikmaður #pepsi365 — Haraldur Hróðmarsson (@HalliHrodmars) August 25, 2014Drasl umferðarinnar Ivanov (staðfest) #Pepsi365 — Halldor I. Sævarsson (@halldoringi) August 25, 2014Mark umferðarinnar: Atvik umferðarinnar: Markaregn:
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður Sport Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“