Innlent

Líðan mannsins óbreytt

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sundlaug Akureyrar
Sundlaug Akureyrar Mynd/Sundlaug Akureyrar
Manninum sem fannst meðvitundarlaus á botni sundlaugar Akureyrar er enn haldið sofandi á gjörgæslu. Þetta segir læknir á Fjórðungssjúkrahúsinu en maðurinn, sem er á níræðisaldri, var fluttur á gjörgæsludeild sjúkrahússins á níunda tímanum í gærmorgun.

Talið er líklegt að maðurinn hafi fengið hjartaáfall en hann er hjartasjúklingur með gangráð. Ekki er talið að hann hafi lengi verið á botni laugarinnar því fólk sem deildi með honum sundbraut segir að þau hafi séð hann að sundi allt fram að því að hann hvarf undir yfirborðið.

Maðurinn var dreginn upp á bakkann þar sem hann var hnoðaður og gefið rafstuð frá fyrstu mínútu. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×