Jafntefli í kveðjuleik Ólafs 2. júní 2014 15:52 Vísir/Stefán
Blikar nældu í stig í kveðjuleik Ólafs Kristjánssonar þrátt fyrir að leika manni færri seinasta korter leiksins gegn Stjörnunni. Garðbæingar komust yfir í fyrri hálfleik með glæsilegu marki frá bakverðinum Niclas Vemmelund. Elvar Páll Sigurðsson jafnaði metin fyrir Blika í seinni hálfleik með skoti af stuttu færi og tókst hvorugu liði að bæta við marki. Leikurinn í kvöld var seinasti leikur Blika undir stjórn Ólafs Kristjánssonar en Guðmundur Benediktsson tekur við taumunum á morgun. Ólafur hefur náð frábærum árangri með lið Blika en árangurinn hefur staðið á sér á þessu tímabili og skilur hann liðið eftir án sigurs eftir sex leiki.Nánari umfjöllun má lesa hér.Kjartan Henry Finnbogason skoraði sigurmark KR í 3-2 sigri á Fram í Vesturbænum í kvöld. Kjartan Henry brenndi af víti en var fljótur að lesa í aðstæður og skallaði frákastið í netið yfir liggjandi Ögmund Kristinsson í marki Fram.Baldur Sigurðsson skoraði fyrsta mark leiksins en gestirnir úr Safamýrinni voru fljótir að svara með marki Ásgeirs Marteinssonar. Viktor Bjarki Arnarson kom Fram yfir í upphafi seinni hálfleiks en KR-ingar svöruðu með tveimur mörkum á fimm mínútum. Þorsteinn Már Ragnarsson jafnaði metin með góðu skoti af stuttu færi áður en Kjartan Henry skoraði sigurmarkið. KR virðist vera á réttri leið eftir slakt gengi í upphafi móts en Íslandsmeistararnir eru með 10 stig eftir sex leiki. Safamýrapiltarnir þurfa hinsvegar að fara að spýta í lófana en Fram situr í níunda sæti eftir leiki kvöldsins með fimm stig.Nánari umfjöllun má lesa hér. Á Vodafone vellinum unnu Valsmenn sannkallaðan vinnusigur á Fylkismönnum. Jafnræði var með liðunum en Mads Lennart Nielsen, danski kletturinn í vörn Vals skoraði sigurmarkið í upphafi seinni hálfleiks. Valur situr í þriðja sæti eftir leikinn með ellefu stig en Fylkir er í því áttunda.Nánari umfjöllun má lesa hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn „Eitt ótrúlegasta augnablik sem þú sérð í hvaða íþrótt sem er“ Sport Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Sjá meira