Viðskipti innlent

Svona kræktu Reyðarfjörður og Egilsstaðir í Drekamiðstöðina

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá iðnaðarhöfninni á Reyðarfirði.
Frá iðnaðarhöfninni á Reyðarfirði. Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.

Bæjarstjórnir Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs létu gera sérstakt myndband til að kynna sveitarfélögin sem þjónustumiðstöð vegna olíuleitar á Drekasvæðinu til að sýna á fundum með fulltrúum olíuleitarfélaganna.  Sameiginlegt markaðsátaks bar svo ávöxt í byrjun vikunnar þegar tilkynnt var að Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað hefðu verið valin sem starfssvæði landþjónustu Eykons vegna bæði olíuleitar og olíuvinnslu.

Sveitarfélögin tóku höndum saman með formlegum samstarfssamningi í desember árið 2012 um að vinna að því að tryggja svæðinu þetta verkefni. Áður höfðu ráðamenn Fjarðabyggðar um eins árs skeið unnið einir að málinu og boðið iðnaðarhöfnina á Reyðarfirði sem valkost. Þeim var þá ráðlagt að fá Fljótsdalshérað með í dæmið vegna alþjóðaflugvallar og þjónustufyrirtækja á Egilsstöðum, eins og hótela og verslana.

Í Fjarðabyggð búa um 4.700 manns en þegar Fljótsdalshérað bættist við fór samanlagður íbúafjöldi upp í 8.200 manns. Með því að leggja saman kraftana styrktu sveitarfélögin á Mið-Austurlandi sig í sessi, ekki síst gagnvart Akureyri, en ráðamenn Eykons hafa upplýst að í raun hafi valið aðeins staðið milli þessara tveggja staða.

Á þessu stigi er óvíst hvort olíuboranir hefjast á Drekasvæðinu. En fari svo að þar finnist olía gætu áhrifin orðið umtalsverð á því svæði sem þjónustar vinnsluna. Borgir og bæir í Noregi eru nærtæk dæmi en þar varð Stafangur fyrsti olíubærinn. Þar byggðist ekki aðeins upp tækniþjónusta heldur fylgdu í kjölfarið skrifstofur olíufélaga og opinberra stofnana. Þar eru til dæmis bæði höfuðstöðvar Olíustofnunar Noregs og höfðstöðvar Statoil, stærsta fyrirtækis Norðurlanda.


Tengdar fréttir

Félag stofnað um olíuhöfn Drekans

"Við höfum þegar hafið vinnu við stofnun félags með heimamönnum til að halda utan um starfsemina,“ segir Haukur Óskarsson, stjórnarmaður í Eykon Energy og framkvæmdastjóri iðnaðar hjá Mannviti, í yfirlýsingu vegna þeirrar ákörðunar að velja iðnaðarhöfnina á Reyðarfirði sem þjónustuhöfn Drekasvæðis.

Svona gætu íslenskir olíubæir litið út

Norska olíuævintýrið dreifist nú út í byggðir Norður-Noregs eftir því sem olíu- og gasvinnslan færist norðar á bóginn. Dæmi eru um að húsnæðisverð tvöfaldist í bæjum þar sem aðstæðum svipar mjög til Íslands.

Reyðarfjörður valinn sem olíubær Íslands

Eykon Energy hefur valið Reyðarfjörð sem þjónustumiðstöð fyrir bæði olíuleit og olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar segir þetta skapa gríðarleg tækifæri.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×