Formaður BSRB gagnrýnir hugmyndir ríkisstjórnarinnar um skuldaniðurfellingar Kjartan Atli Kjartansson skrifar 1. maí 2014 15:02 Margir hlustuðu á ræðu Elínar á Ingólfstorgi. Vísir/Vilhelm „
Við höfum séð að stjórnvöld hafna tekjum frá þeim sem helst eru aflögufærir. Skattar hafa verið lækkaðir á þá best settu og von er á skuldaniðurfellingum sem koma á engan hátt til móts við þá sem mest þurfa á að halda. Og enn eru boðaðar skattalækkanir. Þess vegna er allt útlit fyrir að velferðarkerfið – öryggisnetið okkar – eigi eftir að veikjast enn frekar um leið og álagið á það á eftir að aukast.“ Þetta var meðal þess sem Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, sagði í ræðu sinni á Ingólfstorgi fyrr í dag. Ræðuhöld hófust klukkan rúmlega tvö, eftir rúmlega hálftíma langa kröfugöngu niður Laugaveginn. Elín sagði í ræðu sinni að launafólk hafi gefið stjórnvöldum einstakt tækifæri með því að samþykkja nýja kjarasamninga. „Megin markmið nýrra kjarasamninga var að auka kaupmátt launa og ná tökum á verðbólgu og þannig hefur launafólk enn og aftur axlað ábyrgð og lagt sitt af mörkum til að hér skapist aðstæður til að koma á stöðugu efnahagsumhverfi.En það eru ekki bara kjarasamningar sem stýra hagtölunum. Hlutur ríkis, sveitarfélaga og fyrirtækja er að sama skapi mikilvægur og þessir aðilar verða að halda að sér höndum við verð- og gjaldskrárhækkanir ef markmið um stöðugra efnahagsumhverfi og aukinn kaupmátt eiga að ná fram að ganga.“ Elín sagði einnig að stjórnvöld skorti alla framtíðarsýn og sagði það hlutverk almennings að standa vörð um samfélagsgerð sem stuðlaði að jöfnuði. Ræðan í lítur svona út í heild sinni:Kæru félagar, góðir landsmenn.Til hamingju með daginn.Það er sannur heiður að fá að ávarpa ykkur hér í dag, á baráttudegi verkalýðsins.Þessi dagur er okkur afar kær. Á þessum degi minnum við okkur á, mikilvægi samstöðu launafólks og minnumst þess sem hefur áunnist í baráttunni í gegnum tíðina.Okkur er hollt að rifja upp að ávinningurinn kom ekki að sjálfu sér, heldur kostaði umtalsverðar fórnir og baráttu sem var knúin áfram af samstöðu.Og þessa samstöðu verðum við að virkja áfram því stöðugt er sótt að réttindum okkar og kjörumLaunafólk hefur horft upp á mikla kjararýrnun síðustu ár, hærri kostnað vegna heilbrigðisþjónustu, niðurskurð á almannaþjónustu og uppsagnir starfsfólksÞað er mikill skortur á leiguhúsnæði og leiguverð er hærra en margir ráða við.Börnum sem lifa undir fátæktarmörkum fer fjölgandi og slíkt ástand á ekki að líðast í landi sem kennir sig við mannréttindi, jafnrétti, velferð og jöfnuðVið verðum að bregðast við.Okkur tókst að byggja upp samfélag þar sem jöfnuður fólksins var settur framar öllu – kerfi sem veitti fólki jafnari tækifæri, óháð efnahag, fjölskylduaðstæðum og búsetu.Eins og sakir standa erum við að þróast frá þessari samfélagsgerð yfir í samfélag aukinnar misskiptingar og ójafnaðar.Grunngildum okkar er ógnað.Það munum við ekki sætta okkur við.Þrátt fyrir erfiðan vetur á vinnumarkaði hefur þorri launahreyfingarinnar gert nýja kjarasamninga.Megin markmið nýrra kjarasamninga var að auka kaupmátt launa og ná tökum á verðbólgu og þannig hefur launafólk enn og aftur axlað ábyrgð og lagt sitt af mörkum til að hér skapist aðstæður til að koma á stöðugu efnahagsumhverfiEn það eru ekki bara kjarasamningar sem stýra hagtölunum. Hlutur ríkis, sveitarfélaga og fyrirtækja er að sama skapi mikilvægur og þessir aðilar verða að halda að sér höndum við verð- og gjaldskrárhækkanir ef markmið um stöðugra efnahagsumhverfi og aukinn kaupmátt eiga að ná fram að ganga.Því miður hafa þessir aðilar ekki axlað sömu ábyrgð og launafólk.Og það er í raun grátlegt því stjórnvöld kölluðu mjög eftir því að hér gætu skapast aðstæður fyrir aukinn stöðugleika.Launafólk hefur nú skapað stjórnvöldum einstakt tækifæri og það er stjórnvalda að nýta það.Það þarf að auka kaupmáttinn.Það verður að efla heilbrigðisþjónustuna, menntastofnanir og almannatryggingakerfið.Það verður að búa svo um að það skapist fleiri störf.Það verður að tryggja fólki húsnæði á viðráðanlegu verði.Það þarf að efla velferðarþjónustuna.En framtíðarsýn stjórnvalda skortir.Hér er engin framtíðarstefna í efnahags- og gjaldmiðlamálum.Hér er engin framtíðarstefna við atvinnuuppbyggingu. – Aðeins áframhaldandi stefnuleysi og óvissa.Við höfum fengið að kynnast niðurskurði sem leiðir af sér fjársveltar stofnanir og aukið álag á starfsfólk.Við höfum séð að stjórnvöld vilja endurskoða lög um verndun náttúrusvæða svo mögulega megi byggja fleiri virkjanir – jafnvel þótt enginn viti til hvers eigi að nýta orkuna.Við höfum séð að stjórnvöld hafna tekjum frá þeim sem helst eru aflögufærir.Skattar hafa verið lækkaðir á þá best settu og von er á skuldaniðurfellingum sem koma á engan hátt til móts við þá sem mest þurfa á að halda.Og enn eru boðaðar skattalækkanir.Þess vegna er allt útlit fyrir að velferðarkerfið – öryggisnetið okkar – eigi eftir að veikjast enn frekar um leið og álagið á það á eftir að aukast.Frekari skattalækkanir á þá sem mest hafa þýða ekkert annað en meiri niðurskurð á almannaþjónustu, aukin útgjöld þeirra tekjulægstu og aukin ójöfnuð.Það viljum við ekki sjá.Þótt slíkar aðgerðir geti skilað bættum hagtölum til skamms tíma mun það alltaf kosta okkur meira til lengri tíma litið.Samfélag jafnaðar verður ekki til af sjálfu sér og við megum aldrei missa sjónar af því hvernig samfélag við viljum byggja hér upp.Skattkerfið á að nýta til lífkjarajöfnunar. Það er hugsunin á bak við okkar þjóðfélagsgerð og það stuðlar öðru fremur að auknum jöfnuði.Það er okkar hlutverk að standa vörð um þessa samfélagsgerð.Ágætu félagar.Framundan eru kosningar til sveitastjórna.Loforðaflaumurinn er þegar byrjaður að dynja á okkur og þar lofa flestir úrbótum á því sem ég hef nefnt hér á undan.Ég vona sannarlega að staðið verði við að efla nærþjónustuna, aukið verði framboð á leiguhúsæði, að betur verði gert við barnafjölskyldur, tekjulága og þá sem þurfa að reiða sig á aðstoð hins opinbera.Þau sem munu veljast til að stjórna sveitarfélögum og borg eftir komandi kosningar standa frammi fyrir tækifæri til að efla traust á kjörna fulltrúa , og ekki veitir af.Aukið traust mun þó aðeins hljótast með efndum þess sem lofað hefur verið, ekki með undanbrögðum og eftir á túlkunum loforðanna – heldur raunverulegum efndum.Kæru félagar.Launafólk hefur mikið á sig lagt á síðustu árum og nú verðum við að sjá árangur af erfiðinu.Það er hagur okkar sem hér erum.Það er hagur þeirra sem fara með stjórn ríkis og sveitarfélaga.Það er hagur launafólks.Það er hagur okkar allra.Með samtakamættinum getum við varið það kerfi sem á síðustu áratugum hefur verið reist og með samtakamættinum getum við byggt okkur enn betra samfélag, réttlátara samfélag – landsmönnum öllum til hagsbóta.Réttlátt samfélag jafnaðar er eina tryggingin fyrir velsæld þjóðarinnarKæru félagarTil hamingju með daginn.
Mest lesið Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Segir vopnahlé í höfn Erlent Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Innlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Erlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Innlent Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Innlent Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Innlent Fleiri fréttir Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Sjá meira