Útiloka ekki íkveikju í Iðufelli Gissur Sigurðsson skrifar 2. maí 2014 12:54 Eins og sést er íbúðin gjörónýt eftir brunann. Vísir/Frikki
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar meðal annars hvort um íkveikju hafi verið að ræða þegar eldur kviknaði í næststærsta fjölbýlishúsi á landinu við Iðufell í Breiðholti seint í gærkvöldi. Kona, sem býr í íbúðinni, hlaut reykeitrun og tveir aðrir úr húsinu voru fluttir á slysadeild til rannsókna eftir að eldurinn kviknaði um klukkan hálf tólf í gærkvöldi. Reyk tók að leggja út frá íbúðinni eftir mikinn hvell, sennilega þegar rúða í svalahurð sprakk út. Allt tiltækt slökkvilið var sent á staðinn. Reykkafarar, sem fóru fyrstir inn í íbúðina, fundu konuna í svefnherbergi og björguðu henni út um glugga. Hún hafði ekki gert tilraun til að bjarga sér út. Tíu íbúðir eru í stigaganginum og voru íbúar þeirra hvattir til að halda kyrru fyrir og þétta með hurðum fram á ganginn. Þrátt fyrir það komst reykur inn í að minnsta kosti tvær íbúðir. Slökkvistarf gekk vel og eftir að stigagangurinn hafði verið reykræstur héldu margir íbúar út í strætisvagn þar sem fólk frá Rauða krossinum tók á móti því og veitti því áfallahjálp. Flestir snéru svo aftur til síns heima en tvær fjölskyldur gistu annars staðar. Eldurinn kviknaði í stofu íbúðarinnar og vinnur tæknideild lögreglunnar enn á vettvangi.
Tengdar fréttir Kviknaði í blokk í Iðufelli Eldur kom upp í fjölbýlishúsi við Iðufell í Breiðholti á tólfta tímanum í kvöld. Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var sent á vettvang. 2. maí 2014 00:36 Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Sjá meira
Kviknaði í blokk í Iðufelli Eldur kom upp í fjölbýlishúsi við Iðufell í Breiðholti á tólfta tímanum í kvöld. Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var sent á vettvang. 2. maí 2014 00:36