Kassa af Blátt áfram ljósum stolið af ungum sölumönnum Samúel Karl Ólason skrifar 2. maí 2014 13:24 Mynd/Blátt áfram
Kassa af Blátt áfram ljósum var stolið af tveimur ungum sölumönnum í Bónus í Hafnarfirði á miðvikudaginn. Kassann geymdu þeir fyrir aftan sig á meðan þeir seldu ljós úr öðrum. Seinna tóku þeir eftir því að kassinn hafði verið tekinn. Móðir annars drengsins, sem er fjórtán ára, segir í samtali við Vísi að þeir hafi ekki séð neinn taka kassann. „Ég er búin að fara í Bónus, en það eru engar myndavélar einmitt á þessu svæði.“ Þá hefur hún beðið starfsmenn Bónus um að hringja í sig ef kassinn komi í leitirnar, ef einhver þeirra skyldi hafa tekið hann í misgripum. „Það er mjög leiðinlegt að þessu hafi verið stolið, svo ekki sé hægt að selja ljósin til þessa góða málefnis. Þetta er alveg glatað og ég vona að þessi kassi finnist,“ segir hún. Sala drengjanna gekk að öðru leyti mjög vel að sögn móðurinnar en þetta atvik sé mjög leiðinlegt. Hún segir son sinn vera sleginn yfir þessu og þetta hafi verið leiðinleg lífsreynsla. Guðmundur Örn Jóhannsson sér um sölu Blátt áfram ljósanna og hann segir söluna, sem hófst á miðvikudaginn, hafa farið vel af stað og sölumönnunum hafi verið mjög vel tekið. Hann segir 50 ljós vera í einum kassa sem samsvari um 100 þúsund króna tapi fyrir forvarnarsamtökin Blátt áfram. „Við höfum aldrei áður upplifað svona atvik,“ segir Guðmundur.Uppfært 15:15Kassinn hefur fundist í rusli fyrir utan Bónus. Grunur leikur á að einhver hafi tekið kassann frá drengjunum og hent honum í ruslið fyrir utan verslunina.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira