Enski boltinn

Rodgers: Verður erfitt fyrir Man. City

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Brendan Rodgers er ekki hættur í sálfræðistríðinu gegn City.
Brendan Rodgers er ekki hættur í sálfræðistríðinu gegn City. Vísir/Getty
Baráttan um Englandsmeistaratitilinn í fótbolta er að ná hámarki en tvö efstu lið deildarinnar, Liverpool og Manchester City, eru með 80 stig og eiga tvo leiki eftir.

Manchester City hirti toppsætið af Liverpool á laugardaginn með 3-2 sigri á Everton á útivelli. Liðin hafa skorað jafnmikið en City fengið níu mörkum færri á sig.

Liverpool mætir Crystal Palace á útivelli í kvöld sem verður ekki auðvelt verkefni enda Palace-menn á miklum skriði undir stjórn Tonys Pulis. BrendanRodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, segir pressuna þó alla á City-mönnum.

„Þetta verður erfitt fyrir City, sama hvað gerist. Að spila þrjá leiki á þessu stigi mótsins sem allir skipta svona rosalega miklu máli er rosalega erfitt,“ segir Rodgers.

„City þarf að vinna alla leikina sem það á eftir sem þýðir að liðið þarf að vinna fimm í röð til að standa uppi sem sigurvegari. Þeir hafa aðeins gert það einu sinni á leiktíðinni.“

„Þetta verður ný upplifun fyrir City-liðið. Þessi titilbarátta er langt frá því að vera búin,“ segir Brendan Rodgers.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×