Innlent

Ók ölvaður á fjórhjóli um götur Keflavíkur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Maðurinn á fjórhjólinu tengist ekki fréttinni.
Maðurinn á fjórhjólinu tengist ekki fréttinni.
Maður, sem ók á fjórhjóli um götur Keflavíkur um helgina, reyndist vera undir áhrifum áfengis þegar lögreglumenn á Suðurnesjum höfðu tal af honum um helgina.

Hann viðurkenndi að hafa fengið sér áfengi fyrir aksturinn og var handtekinn og færður til sýnatöku á lögreglustöð.

Tveir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Annar þeirra mældist að auki á 154 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.

Sýnatökur staðfestu að ökumennirnir höfðu báðir neytt kannabisefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×