Bólusetning í stað geldingar á grísum Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 30. apríl 2014 21:01
Gelding íslenskra grísa munu heyra sögunni til þegar bólusetningar gegn galtarlykt verða teknar upp en það er lykt, sem myndast í kjötinu sé grís ekki geldur. Yfirdýralæknir segir bólusetningu mjög jákvæða fyrir grísina. Matvælastofnun og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið í samráði við Svínaræktarfélag Íslands hafa boðað til fræðslufundar í næstu viku um bólusetningu gegn galtarlykt en bólusetning gegn galtarlykt getur komið í stað hefðbundinnar geldingar með skurði. Fjallað verður um þennan nýja valmöguleika, kosti og galla og hvað þurfi að gera til að bændur geti bólusett í stað þess að gelda. „Dýralæknar verða að gelda með deyfingu eða svæfingu en það eru til aðrar leiðir, annað hvort að hætta að gelda, slátra fyrr eða nota bólusetningu í staðin fyrir geldingu, bólusetja gegn galtarlykt”, segir Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir og hún heldur áfram. „Það er þannig að þegar grís verður kynþroska þá myndast lykt í kjötinu, eða galtarbragð, sem neytendum finnst ekki þægileg lykt, hún er fráhrindandi, þess vegna er verið að gelda grísina en það er komið á markaðinn bóluefni sem hægt er að bólusetja gegn þessari lykt, að hún myndist.” Sigurborg segir að bólusetning sé miklu betri meðferð fyrir grísina sjálfa. „Það er enginn sársauki þessu tengdur eins og aðgerðin sem slík, það eru tvær bólusetningar sem þarf að framkvæma, það er eins og hver önnur nálastunga en ekki nærri því eins mikið inngrip,” segir Sigurborg. Þannig að þetta er jákvætt fyrir grísina? “já, mjög jákvætt.”
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Sjá meira