Sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertri tengdamóður Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 22. apríl 2014 14:53 Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. VÍSIR/PJETUR
Karlmaður var í dag dæmdur í sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertri tengdamóður sinni í Héraðsdómi Vesturlands. Konan er 53 ára og hefur búið við þroskaskerðingu frá frumbernsku en hún veiktist mánaðargömul af krampaköstum. Upp komst um málið í lok árs 2012 þegar dóttir konunnar kom að sambýlismanni sínum hafa mök við móður hennar. Hún greindi frá þessu í skýrslutöku hjá lögreglu snemma árs 2013. Þar kom fram að konuna hafði grunað um nokkur skeið að sambýlismaður sinn hefði misnotað móður hennar kynferðislega. Hún hefði ekki fengið það staðfest fyrr en hún kom að þeim.Ekki fallist á að konan skildi þýðingu samfaranna Maðurinn játaði að hafa frá byrjun árs 2012 til desember 2012 haft samræði við konuna í að minnsta kosti þrjú skipti í hverjum mánuði. Konan sagði að hann hefði haft samræði við sig eftir að upp komst um málið og fram í febrúar 2013. Maðurinn neitaði því. Gegn neitun hans fyrir dómi var ekki sannað að hann hefði haft samræði við konuna eftir desember 2012. Maðurinn viðurkenndi að hann hafi gert sér grein fyrir fötlun konunnar. Sú vörn hans að hún hafi sjálf viljað eiga mök við hann þótti dóminum haldlaus þegar litið væri til hvernig andlegri fötlunar konunnar er háttað. Var með engu móti fallist á það með manninum að konan hafi skilið þýðingu samfaranna. Ekki var talið að maðurinn ætti sér neinar málsbætur aðrar en að hann játaði sök. Hann hefði þráfaldlega brotið gegn andlega fatlaðri tengdamóður sinni sem hann hélt heimili með ásamt konu sinni. Hann hafi þannig brugðist þeirri skyldu sinni að styðja hana og vernda vegna fötlunar hennar. Þvert á móti hafi hann brotið gróflega gegn henni kynferðislega.Stjúpfaðir konunnar einnig grunaður Eftir að upp komst um málið í fyrra hófst umfangsmikil rannsókn sem leiddi í ljós að fleiri menn höfðu líklega misnotað konuna um langt skeið. Konan greindi frá því að stjúpfaðir hennar og tveir bræður hans sem nú eru látnir hefðu brotið gegn sér. Stjúpfaðirinn var settur í gæsluvarðhald grunaður um að hafa misnotað stjúpdóttur sína í um 40 ár. Ríkissaksóknari ákvað í janúar síðastliðnum að maðurinn skyldi ekki ákærður þar sem gögn málsins þóttu ekki nægjanleg til sakfellis.
Tengdar fréttir Hefði viljað klára málið fyrir dómstólum Rúmlega áttræður karlmaður sem grunaður var um að hafa misnotað þroskaskerta stjúpdóttur sína kynferðislega í um 40 ára verður ekki ákærður. 8. janúar 2014 19:52 Fagráð um kynferðisofbeldi gegn fötluðu fólki „Upphafi má meðal annars rekja til málsins með Karl Vigni Þorsteinsson en hann hafði á sínum tíma komið að starfsemi innan Blindrafélagsins,“ segir Kristinn Halldór Einarsson, formaður Blindrafélagsins. 9. janúar 2014 14:39 Kynferðisbrotamáli vísað aftur til lögreglu Lögreglan á Akranesi bíður nú eftir niðurstöðum úr læknisrannsóknum og gögnum um sjúkrasögu rúmlega áttræðs manns af Snæfellsnesi sem grunaður er um að hafa brotið kynferðislega gegn stjúpdóttur sinni í áratugi. 10. október 2013 07:00 Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sjá meira
Hefði viljað klára málið fyrir dómstólum Rúmlega áttræður karlmaður sem grunaður var um að hafa misnotað þroskaskerta stjúpdóttur sína kynferðislega í um 40 ára verður ekki ákærður. 8. janúar 2014 19:52
Fagráð um kynferðisofbeldi gegn fötluðu fólki „Upphafi má meðal annars rekja til málsins með Karl Vigni Þorsteinsson en hann hafði á sínum tíma komið að starfsemi innan Blindrafélagsins,“ segir Kristinn Halldór Einarsson, formaður Blindrafélagsins. 9. janúar 2014 14:39
Kynferðisbrotamáli vísað aftur til lögreglu Lögreglan á Akranesi bíður nú eftir niðurstöðum úr læknisrannsóknum og gögnum um sjúkrasögu rúmlega áttræðs manns af Snæfellsnesi sem grunaður er um að hafa brotið kynferðislega gegn stjúpdóttur sinni í áratugi. 10. október 2013 07:00