NBA í nótt: Töframennirnir í kjörstöðu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. apríl 2014 07:00 Trevor Brooker og Taj Gibson í baráttunni í nótt. Vísir/AP
Washington Wizards er komið í 2-0 forystu gegn Chicaco Bulls í úrslitakeppni NBA-deildarinnar og á næstu tvo leiki á heimavelli. Washington vann í Chicago í nótt, 101-99, í framlengdum leik þrátt fyrir að hafa verið mest tíu stigum undir í fjórða leikhluta.Bradley Beal var öflugur í endurkomunni og fékk tækifæri til að tryggja Washington sigur í lok venjulegs leiktíma en skot hans geigaði. Hann skoraði 26 stig í leiknum. Washington reyndist svo sterkara í framlengingunni. Nene skilaði mikilvægum stigum en alls skoraði sautján í leiknum, þar af sex í framlengingunni.DJ Augustin var stigahæstur hjá Chicago með 25 stig en Taj Gibson skoraði 22 stig og var með tíu fráköst. Toronto vann Brooklyn, 100-95, og jafnaði þar með metin í rimmunni í 1-1. Næstu tveir leikir fara fram í Brooklyn.DeMar DeRozan skoraði 30 stig fyrir Toronto og Jonas Valanciunas var með fimmtán stig og fjórtán fráköst.Joe Johnson skoraði átján stig fyrir Brooklyn sem var í forystu í upphafi fjórða leikhluta. En gestirnir lentu í villuvandræðum auk þess sem Paul Pierce átti slæman leik. Hann nýtti aðeins tvö af ellefu skotum sínum í leiknum og klikkaði á öllum sex þriggja stiga tilraunum sínum. Hann endaði með sjö stig. Indiana vann Atlanta, 101-85, og er staðan í rimmunni einnig jöfn, 1-1. Paul George var með 27 stig, tíu fráköst og sex stoðsendingar fyrir Indiana og varamaðurinn Luis Scola 20 stig. Atlanta vann fyrsta leik liðanna nokkuð óvænt en á nú næstu tvo leiki á heimavelli. Paul Millsap skoraði nítján stig fyrir liðið í nótt.Úrslit næturinnar: Indiana - Atlanta 101-85 (1-1) Toronto - Brooklyn 100-95 (1-1) Chicago - Washington 99-101 (0-2)
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Fótbolti Fleiri fréttir Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Sjá meira