Innlent

Sigmundur Davíð fer á alþjóðaþing frjálslyndra flokka

Stefán Árni Pálsson skrifar
gjaldeyrishaftanna hafa verið skipaðan í lok nóvember í fyrra.
gjaldeyrishaftanna hafa verið skipaðan í lok nóvember í fyrra. Vísir/Daníel
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra,mun taka þátt í alþjóðaþingi frjálslyndra flokka, Liberal International, sem fram fer í Rotterdam dagana 24.-27. apríl næstkomandi en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Framsóknarflokknum.

Sigmundur Davíð mun meðal annars taka þátt í umræðum um fríverslun, samsteypustjórnir og erindi frjálslyndra gilda við fólk á 21. öld.

Þá mun Sigmundur Davíð eiga ýmsa fundi með leiðtogum annarra frjálslyndra flokka, en yfir 100 stjórnmálaflokkar eiga aðild að alþjóðasamtökunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×