Ragnheiður Björk Þórsdóttir valin bæjarlistamaður Akureyrar Stefán Árni Pálsson skrifar 24. apríl 2014 19:59 Ragnheiður má sjá hér fyrir miðju í fremri röð. mynd/aðsend.
Á Vorkomu Akureyrarstofu sem haldin var í einmuna veðurblíðu á Akureyri í dag, var tilkynnt að Ragnheiður Björk Þórsdóttir myndlistarmaður hljóti 8 mánaða starfslaun listamanns á Akureyri 2014-2015. Ragnheiður Björk er fremst í sinni röð meðal textíllistamanna hér á landi. Með list sinni leggur hún rækt við íslenskan menningararf bæði með rannsóknavinnu sinni og í sköpun nýrra vefmyndverka. Framlag hennar til myndlistar er metnaðarfullt og mikilsvert. Á samkomunni voru einnig veittar heiðursviðurkenningar Menningarsjóðs, viðurkenning Húsverndarsjóðs, viðurkenning fyrir byggingalist og athafna- og nýsköpunarverðlaun Akureyrar. Heiðursviðurkenningar úr Menningarsjóði fyrir mikilvægt framlag til menningarmála á Akureyri hlutu myndlistamaðurinn Guðmundur Ármann Sigurjónsson og leikkonan Sunna Borg. Arkitektastofan Gláma-Kím hlaut viðurkenningu fyrir byggingalist fyrir heildarútlit Háskólans á Akureyri og einkar áhugaverða heildarmynd háskólasvæðisins. Það var svo hið reisulega hús við Þórunnarstræti 99 sem hlaut viðurkenningu húsverndarsjóðs Akureyrar. Húsið var hannað af Guðjóni Samúelssyni árið 1943 en þá var hann húsameistari ríkisins. Til gamans má nefna að hann hannaði einnig Akureyrarkirkju og Barnaskóla Akureyrar (nú Rósenborg). Vel þykir hafa tekist til við að aðlaga húsið nýju hlutverki án þess að ganga of nærri upprunalegu útliti þess og raska fagurfræðilegum hlutföllum í því en samráð var haft við Minjastofnun/húsafriðunarnefnd um hönnun og frágang hússins. Slippurinn á Akureyri, sem er stærsta skipasmíða- og málmvinnslufyrirtækið á Íslandi, veitti viðtöku Athafnaverðlaunum Akureyrar fyrir eftirtektarvert framtak í atvinnulífinu. Nýsköpunarverðlaunin komu í hlut Neptune ehf. en fyrirtækið gerir út tvö rannsóknarskip sem sérhæfð eru til að þjónusta orkugeirann. Það þjónar einnig fyrirtækjum og verkefnum í fjarskiptaiðnaði og kemur að meðhöndlun sæstrengja.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira