Verslunarskólinn vinsælastur Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 25. apríl 2014 13:25 Verslunarskóli Íslands er vinsælastur framhaldsskólanna í ár á miðað við fjölda umsókna um skólavist þar. VÍSIR/HÖRÐUR
Verslunarskóli Íslands er vinsælastur framhaldsskólanna í ár á miðað við fjölda umsókna um skólavist þar. Samtals sóttu 699 manns um að hefja nám þar næsta haust þar af völdu 512 manns skólann sem fyrsta kost. Næst á eftir í vinsældum er Menntaskólinn við Hamrahlíð en 674 manns sóttu um nám þar, þar af völdu 377 manns skólann sem fyrsta kost. Forinnritun í framhaldsskóla landsins er lokið. Svanhildur Steinarsdóttir hjá Námsmatsstofnun segir í samtali við Vísi að lokainnritun í skólana hefjist 5. maí og standi til 10. júní. Nemendur fá svo að vita örlög sín í lok júní. Umsækjendur um framhaldsskóla geta valið tvo skóla. Annan sem fyrsta kost og hinn sem annan kost.Færri komast að en vilja í 24 skólum Verslunarskóli Íslands tekur við 308 nemendum og því er ljóst að færri komast að en vilja. Menntaskólinn við Hamrahlíð tekur við 260 nemendum og þar er sama staða, ekki komast allur sem sóttu um skólann í nám þar. Það á við í 24 af 33 framhaldsskólum landsins að umsóknir eru fleiri en sem nemur þeim fjölda nemenda sem viðkomandi skóli getur tekið við. Mikil óvissa ríkir því hjá nemendum næstu tvo mánuði um hvort þeir komist inn í þá skóla sem þeir völdu.Skólar horfa til einkunna Skólarnir horfa til einkunna í prófum þegar kemur að því að ákveða hvaða nemendur fá inngöngu. Einkunnir í vorprófum munu ekki liggja fyrir fyrr en í byrjun júní. Svanhildur bendir þó á að nemendur hafi margir hverjir góða tilfinningu fyrir því hvar þeir standi með hliðsjón af einkunnum í miðsvetrarprófi og hve vel þeir hafi stundað nám sitt. Nú, þegar tölurnar úr forinnritun liggi fyrir, geti þeir að einhverju leyti metið möguleika sína á að komast inn í sinn uppáhaldsskóla. Nemendur hafa til 10. júní til þess að breyta vali sínu meti þeir möguleika sína litla í sínu upphaflega vali. Í lok júní verður svo nemendum fundið skólapláss að þeim meðtöldum sem ekki fengu inni í sínum upphaflega vali. Kvennaskólinn í Reykjavík er með þar næst flestar umsóknir eða 603. 248 völdu skólann sem fyrsta val og skólinn tekur við 240 nemendum. 471 sóttu um nám í Menntaskólanum í Reykjavík, þar af völdu 264 manns hann sem fyrsta kost og tekur skólinn við 245 nemendum. Menntaskólinn í Kópavogi tekur sömuleiðis við 245 nemendum en 413 manns sóttu um að komast þangað en 154 völdu hann sem fyrsta kost.Í fjórum skólum sóttu færri en tekið er við Í fjórum skólum bar svo við að færri sóttu um en skólinn tekur við. 37 manns sóttu um nám í Fjölbrautaskóla Snæfellinga en hann tekur við 45 nemendum. 234 sóttu um nám í Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem tekur við 240 nýjum nemendum. Menntaskólanum Ísafirði bárust samtals 67 umsóknir en þar er tekið við 73 nemendum og Í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum sóttu 37 um nám en skólinn tekur við 53 nýjum nemendum.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Sjá meira