„Miðaldra konur áreiti unga drengi kynferðislega“ Samúel Karl Ólason skrifar 28. apríl 2014 00:01 Vísir/Valli/GVA „
Þessar konur eiga að skammast sín. Svona á ekki að eiga sér stað og á ekki að þrífast. Ef mér er misboðið og mér finnst eitthvað rangt, þá stíg ég fram,“ segir Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum, í samtali við Vísi. Margrét tilkynnti í pistli á Facebook í gærkvöldi að hún gæti ekki setið á sér og yrði að greina frá því sem gerðist á Kvennakvöldi Breiðabliks á laugardagskvöldið. „Er búin að vera vitni að því tvö ár í röð að miðaldra konur áreiti unga drengi kynferðislega,“ skrifaði Margrét Júlía. Hún segir að þar hafi konur farið fram á að drengirnir sem voru að þjóna færu úr að ofan. Um var að ræða knattspyrnumenn Kópavogsliðsins sem Margrét telur að hafi verið einhvers staðar á milli 18 og 20 ára.Fésbókarfærsla Margrétar Júlíu.Mynd/Skjáskot„Og meira segja átti að hefja uppboð á nokkrum þeirra,“ skrifaði Margrét. Hún bendir á að árið 2013 hafi nokkrum konum tekist að láta einhverja piltanna fara úr að ofan og selja þeim happdrættismiða þannig. „Ég hefði getað grátið af skömm fyrir kynsystrum mínum og vegna þessarar ömurlegu stöðu sem drengirnir voru settir í.“ Margrét fór tvisvar sinnum fram á að þetta yrði stöðvað. Henni væri misboðið, þetta væri niðurlægjandi, dónalegt og kynferðislegt áreiti. Hún ræddi einnig við drengina og segir þá ekki hafa liðið vel yfir þessu. „Hvað myndu konur segja ef svona hátterni væri á karlakvöldum?“ „Það er ömurlegt þegar maður upplifir svona. Konur sem berjast fyrir jafnrétti kynja og vernd kvenna gagnvart ofbeldi eiga ekki að leika þennan leik,“ segir Margrét.Uppfært klukkan 10:00 Breiðablik sendi tölvupósts til Vísis nú fyrir stundu vegna málsinsV/fréttar um kvennakvöld Breiðabliks Það er afar miður að reynsla þessa gests á samkomu á vegum deildarinnar hafi verið með þeim hætti sem hún lýsir. Knattspyrnudeild Breiðabliks vill hafa í heiðri siðreglur félagsins og jafnréttisstefnu knattspyrnudeildarinnar. Hún mun kynna reglurnar fyrir aðstandendum samkomunnar og brýna fyrir þeim að gera það sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að upplifun gesta verði með þessum hætti. Knattspyrnudeild Breiðabliks
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Sjá meira