Innlent

22 ökumenn teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tuttugu og tveir ökumenn, nítján karlar og þrjár konur, voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni.

Á sama tímabili voru rúmlega sextíu ökumenn teknir fyrir hraðakstur í umdæminu, en lögreglan var víða við hraðamælingar.

Þá var mikið um stöðubrot, en bara í og við Ásgarð í Garðabæ hafði lögreglan afskipti af nálægt 80 ökutækjum vegna þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×